sunnudagur, júní 24, 2007

I kvold i dramaseriunni B&J

Ja mer finnst eins og eg lifi i sjonvarpstaetti. Allavega skil eg ekki afhverju tad hefur ekki verid buin til tattaseria um svona diving center (gott og gilt islenskt ord oskast her med). Alltaf eitthvad spennandi ad gerast og folkid sem vinnur herna gaeti allt upp til hopa verid sjonvarpskarakterar.
Vid hofum Martin, svisslendingur sem keypti ut J i B&J fyrir longu sidan og rekur nuna Salang utibuid. Tad er ekki laust vid drama i kringum hann tvi fyrir ari sidan ta haetti hann ad geta kafad. Tessi taeknilegi og reyndi kafari gat skyndilega ekki jafnad trystinginn i eyrunum og for fra serfraedingi til serfraedings til ad finna astaedu fyrir vandamalinu. Fyrir nokkrum vikum for hann sidan i adgerd a eyrunum sem gaeti hugsanlega leyst vandamalid. Adgerdin var samt ekki an ahaettu enda eru eyrun vidkvaem. I gaer akvad hann svo ad profa og skelti ser i sjoinn vid litlu smabatahofnina her. Sidan sast hann ekki meir fyrr en seinnipartinn. Ta birtist Martinn dapur i bragdi og tilkynnti mer og Louisu ad hann myndi aldrei kafa framar. Adgerdin hafdi ekki virkad sem skyldi og hann skreyddist sartjadur heim med eyrun full af vatni, svima og eyrnaverk. Aeldi og la svo fyrir i klukkutima. Sem sagt kafari sem getur ekki kafad.
Vid hofum Jay og Gun. Jay er kennari hja B&J, Gun er norskur kennari hja odru fyrirtaeki her i Salang. Tau eiga i stormasomu sambandi. Fyrir nokkru sidan for Gun til Egyptalands og var ad kenna tar, hun sneri til baka til ad vera med honum Jay en komst ta ad tvi ad Jay hafdi verid heldur betur nain med einum vidskiptavininum eda "that french whore" eins og Gun kallar hana. Fyrst ad Gun hafdi eitt tveimur arum af lifi sinu med Jay ta akvad hun ad naestu tveimur arum myndu vera varid i ad gera lif Jay eins obaerilegt og haegt er. Jay hefur vist verid vinalegur vid fleiri vidskiptavini en Gun veit ekki af teim.
Sidan eru Louisa og Rick. Rick var divemaster hja odru fyrirtaeki en vard svo skotinn i Louisu og for ad vinna fyrir B&J. Tau (eda ollu heldur Louisa) eru nu ad reyna safna pening svo tau komist til englands um jolin. Louisa tekur sofnina heldur alvarlegar heldur en Rick sem verdur til tess ad Lou faer tar i augun og tarf ad bregda ser fra. Rick sa lika litla astaedu til tess ad gefa Lou afmaelisgjof um daginn. Sem betur fer hafdi Richard sem vinnur a batnum hlaupid til og reddad afmaeliskoku og vodkaflosku fyrir afmaelisveisluna. Tad sorglega var ad Lou vissi alveg ad Rick hafdi ekki haft neitt med tetta ad gera og kyssti Richard fyrir.
Svo er tad Sham, eg hef tegar lyst Sham. Litid vid tad ad baeta.
Jurgen, tyskur, vann fyrir flugfyrirtaeki en akvad ad taka sem arsleifi og vinna sem divemaster hja B&J. Hann er mjog tyskur... Hann og Emmy (kennari fra ABC) laumast stundum og fa ser hotelherbergi og halda ad enginn viti.

Sidan eru karakterar sem koma aftur og aftur. Lloyd sem eg hef sagt fra. Andy, breti a fimmtugsaldri med graa fidringinn sem byr nu i Singapur og a 26 ara kaerustu. Kemur reglulega og kafar og blikkar ljoshaerda islenska DMT-inn. Svo er annar Andy, nagranninn minn. Hann er divemaster hja enn odru fyrirtaekinu, ameriskur og er sifelt med nyja domu upp a arminn. Eg mynntist a kvennsemi hans um daginn og hann reyndi ad verja sig med teim ordum ad tetta vaeru allt fyrrverandi kaerustur sem kaemu ad heimsaekja hann. Eg sagdi ad tetta liti ekkert betur ut fyrir vikid. Tegar vid gengum fra barnum ta strauk hann a mer harid og reyndi ad halda um mittid a mer. Ja sumir rada bara ekki vid sig.

Tott ad flestir seu vinir her ta eru B&J og nagrannafyrirtaekid ekki miklir vinir. Teir t.d. skemmdu hja okkur skrifstofuna um daginn. Ja Martin fekk nog og braust ut mikid rifrildi milli hans og hins eigandans sem sidan leiddist ut i samraedur sem sidan urdu naestum tvi slagsmal og aftur samraedur, rifrildi, naestum tvi slagsmal og ad lokum satt. Hinn eigandinn vidurkenndi ad teir sem ynnu hja hinu fyrirtaekinu vaeru ju allir upp til hopa glaepamenn og eiturlyfjafiklar og aettu allir heima i fangelsi. En teir redu bara ekki vid sig enda allir komnir undan sjoraeningjum.

Og ekki er allt dramad buid. I sidustu viku ta do einn af vidskiptavinunum okkar. Ja madurinn vaknadi og gat ekki vakid konuna sina. Kallad var a Martin, sem er madurinn sem kallad er i her i Salang, hann og Rick reyndu ad lifga konuna vid en an arangurs. Hun var offitusjuklingur og hafdi att vid hjartavandamal ad strida. Mjog indael.

Ja ef netid vaeri betra og odyrara ta myndi eg blogga a hverjum degi.

sunnudagur, júní 17, 2007

Ljoslaus

Um daginn for eg i mina adra naeturkofun. Fyrsta naeturkofunin min var fyrir sex arum tegar eg laerdi ad kafa i Astraliu. Rick var ad fara med hop og eg akvad ad skella mer med og a sidustu stundu ta akvad Jurgen ad koma med lika. Teir tilkynntu mer ad tar sem eg vaeri DMT ta baeri mer ad lata af hendi vasaljosid mitt ef ljos einhvers vidskiptavinanna myndi bila. En audvitad myndum vid taka med varaljos. Tegar vid komum a batinn kom i ljos ad Sara, divemasterinn i ABC, hafdi gleymt ad lata tvo auka ljos a batinn. Tad voru tvi bara rett nogu morg ljos fyrir okkur oll. Jurgen var audvitad med super duper ljosid sitt sem litur meira ut eins og geislasverd heldur en vasaljos. Vid stukkum svo ut i myrkrid, sjo manna hopur. Eg rak lestina eins og venjulega og flaut um ein og trufladi svefndrukna fiska med ljosgeislanum minum. Rick leiddi hopinn fremst og i fjarska gat madur sed bjarmann af superljosinu hans Jurgens. Eftir um 10 minutur ta kemur Rick til min og bendir mer ad koma med ser, hann leidir mig til Tim, einn af kafurunum og bendir mer ad lata af hendi ljosid mitt. Ljosid hans Tim var i tann mund ad gefa upp ondina. Tim reyndi ad vera herramadur og neitadi fyrst ad taka ljosid af domunni en eg var godur DMT og neyddi ljosid mitt upp a hann og tok batteriislausa ljosid hans i mina vorslu. Sidan fylgdi eg Rick eftir. Vid saum nu markt skemmtilegt eins og smokkfiska og tann staersta einbuakrabba sem eg hef nokkurntiman sed. Skelin sem hann bar med ser var a staerd vid fotbolta. Greyid var nu ekki satt ad hafa sex kafara i kringum sig med tilheyrandi ljosaflodi. Stuttu seinna kemur Jurgen, ljosid sem eg hafi gefid Tim hafdi ta slokknad og hann turfti ad lata af hendi super duper ljosid sitt. Jurgen var ekki sattur vid tad og upphofst mikill eltingaleikur tar sem madur heyrdi thihihi flissid i Rick og Jurgen a eftir. Mjog fagmannlegt. Vid Jurgen rottudum okkur ljoslaus saman og syntum i burt fra hopnum. Sidan bodudu vid ut ollum ongum til ad sja fosforljosin. A nottunni ta eru pinulitil krabbadyr sem gefa fra ser blatt ljos tegar tau eru truflud, tannig ad ef madur hristir hendina ta kveiknar fullt af litlum ljosum, stundum ef tad er mikid af krabbadyrum ta getur madur sed ljosslod a eftir kofurum tegar teir synda med fitunum. Eftir ad hafa dundad okkur vid ad gera teitara hreyfingar med hondunum ta sameinudumst vid aftur hopnum sem var nu audfundinn ut af ollum ljosunum. Stuttu seinna gaf Rick merki um ad fara upp i 5 metrana til ad gera oryggisstopp. Daginn eftir skammadi Louisa ta fyrir ad hafa latid mig gefa fra mer ljosid mitt tegar tetta var bara onnur naeturkofunin min. En ad synda um i myrkrinu var nu bara ovenju fridsaelt. Plus tad voru 6 ljos (seinna 5...) i gangi svo tad var nu ekkert dimmt.

Barattan vid kongulaernar stendur enn og mig grunar ad su baratta muni vara tangad til eg fer fra Salang. Eg hef nu fjarfest i podduspreyi sem hefur komid i godar tarfir nokkrum sinnum, en tessi kvikindi eru naestum tvi odrepandi. Engin a staerd vid Karlottu hefur to latid sja sig.

Namid gengur lika vel, eg er nu komin vel avegis med boklega hlutann. A morgun aetla eg svo ad adstoda Sham med byrjendanamskeid. Mer finnst gaman ad fylgjast med Sham, hann er eins og karakter ur biomynd. Mikill kvennasjarmor an tess ad vera smedjulegur. Hann bordar alltaf kvoldmat med einhverjum stelpum, og tad er sjaldnast ein vid bordid. "He is smart" sagdi Louisa eitt kvoldid tegar vid vorum ad fylgjast med honum "he always goes for the ugly one" hahaha. Hann er i ataki nuna og er ad vinna i tvi ad fa tvottabretti. En partur af sjarmanum er ad hann er ekki litill og rindilslegur eins og flestir asiskir karlmenn. Ja eins og Louisa sagdi, stelpur verda ad passa sig a Sham tvi adur en taer vita af ta eru taer med komnar med naerbuxurnar um oklana, nema tad hljomadi ekki svona illa a ensku...

föstudagur, júní 08, 2007

Salang salang

Jamm og jaeja. Undanfarna daga hef eg verid ad adstoda Louisu. Hun var ad kenna konu fra Singapur ad kafa og eg atti ad hjalpa til. Ad sjalfsogdu turfti Louisa enga adstod med einn nemanda en eg tarf audvitad ad aefa mig. Tad var svolitid fyndid ad fylgjast med og hugsa til tess ad eitt sinn var madur svona lika. Stanslaust fljotandi upp, halftima ad setja saman bunadinn og gera sig til. Einfoldustu hlutir nedansjavar virtust oyfirstiganlegir. Allavega Louisa er ekki feimin vid ad tuska nemendurna sina til og hun faerdi konuna til eins og tuskudukku. Konan var stanslaust ad fljota upp og vid ad kippa henni nidur. Eg for svo lika med tegar konan for i sidustu tvaer kafanirnar sem eru gerdar fra batnum. Eg kom nu auga a nokkrar skjaldbokur sem var gaman. Milli tess sem madur kippti konunni nidur. I hadegisstoppinu ta var mer og Richie skipad ad troda marvadann i 15 minutur, sem var nu ekki erfitt fyrir okkur tar sem vid fljotum baedi vel. Louisa var nu ekki satt vid tad og let okkur fa tvo kilo af blyi sem vid attum ad halda a i hondunum. Tetta var nu svindl tvi madur gaeti latid Richie fa fimm kilo og hann myndi samt fljota. Svo Richie la a bakinu med sin tvo kilo a medan eg trod marvadann med fotunum og kalladi ad tetta vaeri svindl. Madur a ad geta notad hendurnar lika.

I dag for eg med Jurgen i skemmtikofun. Hann var ad fara med tvo systkini fra Singapur sem hofdu ekki kafad sidan tau toku namskeidid fyrir ari sidan. Jurgen hlod a mig auka blyi sem vid myndum liklegast turfa baeta a tau systkinin tegar tau faeru ad fljota upp. Svo forum vid nidur hja bryggjunni og ad sjalfsogdu flutu tau bara rett undir yfirbordinu og komust ekki lengra nidur. Endadi med tvi ad eg kippti konunni nidur og var svo fyrir ofan hana svo hun flyti ekki upp og tannig kom eg henni nidur. Yfirleitt tegar madur kemur folki nidur nokkra metra ta er tad i agaetis malum. Tad er bara tetta ad turfa anda vel fra ser til ad madur sokkvi sem folki fynnst otaegilegt i byrjun. Lifid vid hofnina er ansi skemmtilegt og mikid ad sja. Eg fer tangad likast til aftur a morgun til ad kortleggja svaedid, en eg tarf ad kortleggja tvo svaedi fyrir divemasterinn. Reyndar vill PADI bara fa eitt kort en B&J eru leidinleg og vilja tvo. I lokin a kofuninni ta var eg buin ad lata fra mer oll auka kiloin og gott betur og var sjalf farin ad stroggla vid ad halda mer nidri. Eg tarf ad aefa mig betur i tvi ad vera of lett.

Annars er lifid her i Salang ansi ljuft. Tetta er bara sumarleifisstadur. Tekur mann svona 15 minutur ad rolta fra einum enda yfir a annan. Heilir fjorir veitingastadir. Sa kinverski er "dyr" og bara farid a hann svona spari. Vid forum tangad i vikunni tvi Rick atti afmaeli. Annars ta er bara skipst a ad fara a hina veitingastadina sem allir bjoda upp a somu rettina. Tad var brotist inn i budina i fyrrinott. Adeins peningakassinn var tekinn og buid ad gramsa i sjukrakassanum. Sem betur fer hafdi Louisa taemt kassann tveim dogum adur og yfirleitt er ekki mikid ad gera i vikunni svo tetta var ekki mikid tjon. Annars er svona innbrot faheyrdur atburdur her i Salang, svona nokkud gerist ekki her. Hefur eflaust verid eitthvad utanadkomandi lid. Ef upp kemst hverjir voru ad verki ta er vaninn ad lemja vidkomandi med kylfum og henda teim af eyjunni med teim ordum ad koma aldrei aftur. Ja, heimamenn vilja bara ro og naedi, annad er vont fyrir turismann.

föstudagur, júní 01, 2007

Leitin af Karlottu og akkeri

Eftir ad hafa spreyjad kofann minn og klosettid vel og vandlega ta fann eg enga kongulo. Hins vegar grunadi mig ad hun vaeri ennta inna klosetti. Bara i felum a milli veggjanna, tad er nefnilega steyptur veggur halfa leid og svo bara tre og bil tar a milli a einum veggnum. Mig grunadi sterklega ad risa konguloin heldi tar til. Eg fordadist tvi ad fara inn a klosett og notadi varudarradstafanir ef eg turfti tangad inn af illri naudsyn. Opnadi rennihurdina varlega med sopinn i badum og leit vel og vandlega a alla veggi. Svo flytti eg mer ad pissa og hljop svo ut, renndi hurdinni fyrir og trod mottunum vel undir. Tad kom svo kvold og mig grunadi ad konguloin faeri nu a stja. Eg turfti samt ad pissa adur en eg faeri i baeinn ad fa mer kvoldmat. Eg renndi hurdinni hratt i teirri von ad konguloin vaeri tar og kremdist. Eg leit svo rannsakandi a alla veggi en sa ekkert, eg steig eitt skref inn og sa ta eitthvad brunt a staerd vid hendina a mer hlaupa eftir veggnum i att ad klosettkassanum. Eg var fljot aftur ut, svo stod eg med sopinn og horfdi a kvikindid sem horfdi a moti og badar bidum vid eftir ad hin gerdi eitthvad. Eg hugsadi med mer ad tetta gengi ekki, eg yrdi bara ad na henni med sopnum. Svo eg tok eitt skref med sopinn a lofti, konguloin sa hvad eg aetladi mer og hljop af stad, og madur lifandi hvad hun hljop hratt. Eins og elding. Eftir ad hafa veifad sopnum arangurslaust ta hvarf konguloin nidur sprunguna. Eg lokadi hurdinni, trod mottunum undir og hugsadi med mer ad eg yrdi ad nota efnahernad. Eg labbadi nidur ad B&J og tar sat Louisa og var ad fara yfir spurningar med honum Rich. Rich er DMT hja B&J i ABC (naesti baer vid) og tarf ad taka rescue diver lika svo vid gerum eflaust verklega hlutann saman. Eg kvartadi undan lodna herbergisfelaganum minum og Rich lagdi til ad eg myndi bara nefna hann. Honum fannst Karlotta vid haefi (eins og i barnalaginu). Vid forum svo og fengum okkur kvoldmat asamt Jurgen (sem er dive master herna), Rich tok ferjuna til ABC og vid hin forum a Four-S cafe sem er adal barinn her i Salang. Allan timan var eg ad hugsa um Karlottu og hvad i oskopunum eg gaeti gert. Eg endadi med plan um ad spreyja Karlottu vel og vandlega og tar med drepa hana, troda svo handklaedum i bilid a milli veggjanna til ad kongulaer kaemust ekki tar inn og ad lokum setja eitthvad fyrir gluggann a klosettinu tvi tad er bananatre fyrir utan og ein greinin liggur ad glugganum. I bananatrjam leinast allskonar kvikindi og mer finnst alveg otarfi ad hafa heila bru ur trenu yfir i gluggann minn. Eg yfirgaf tvi folkid a barnum, for a skrifstofuna og nadi i podduspreyid. Tegar i kofann var komid ta opnadi eg inn a klosett og vitimenn tar sat Karlotta vid klosettkassann. Eg dro djupt andann og bjo mig undir ad spreyja hana og hun hafdi augun a mer og setti sig i vidbragdstodu. Um leid og eg spreyjadi ta hljop hun af stad. Hun do ekkert strax eins og Lloyd hafdi lofad. Eg helt afram ad spreyja og Karlotta sneri vid og tok beina stefnu i sprunguna og tar nidur. Eg spreyjadi a eftir henni og tok svo handklaedin tvo sem fylgdu med kofanum og trod teim eftir sprungunni. Med kustskaftinu audvitad. Sidan horfdi eg ahyggjufullum augum a gluggan og greinina af bananatrenu sem gaegdist innfyrir, eg atti ekkert til ad setja fyrir hann. Eg renndi tvi hurdinni aftur og trod mottunum undir og gekk aftur nidur ad Four-s cafe.

Daginn eftir opnadi eg audvitad badherbergid varlega en tar var engin kongulo. Martin hafdi svo bedid Louisu ad taka einn af open water nemendunum i sma barnapossun. Tad var nefnilega tyskt par og stelpan var ekki alveg ad fila sig i fyrsta timanum. Louisa for tvi med hana nidur hja bryggjunni og helt stanslaust i hendina a henni a medan taer syntu um. Eg var fyrir aftan og helt i baujuna til ad batar vissu ad vid vaerum fyrir nedan. Stelpan var serstaklega hraedd vid ad fara djupt og tegar vid vorum komnar a 5 metra dypi ta neitadi hun ad fara lengra og vid snerum vid. Hun haetti svo i namskeidinu. Tar sem vid Louisa vorum ta lausar eftir hadegi ta slogumst vid i for med Rick og tveimur felogum hans sem voru ad fara leita ad akkeri i hofninni sem einn fiskibaturinn hafid tynt. Ef vid myndum finna tad ta myndum vid fa ad launum allskonar sjavarfang og haft grill um kvoldid. Hvad gerir madur ekki fyrir okeypis maltid a tessum sidustu og verstu timum? Louisa mynnti Rick a ad hun vaeri nu med attavita svo vid gaetum leitad skipulega. Vid forum svo um bord i fiskibatinn og hann silgdi med okkur stuttan spol tar sem akkerid la. Vid hoppudum oll uti og kofudum nidur. Vid forum nidur a 24 m dypi og skygni var svona 1 metri. Mennirnir foru ad synda handahofs kennt um a medan Louisa veifadi pirrud attavitanum. Loks tok hun af skarid og byrjadi ad leita skipulega. Vid litum svo fyrir aftan okkur og saum ad enginn hafdi fylgt a eftir. Vid snerum vid og saum ad teir svifu bara i hring. Vid syntum adeins meira um en svo var kominn timi til ad fara upp. Madur getur bara verid i rumar 20 minutur a svona dypi. Vid forum upp akkerislaus og fengum engan mat.

I gaer og i dag ta var eg ad gera verklega hlutan i bjorgunar kafaranum (rescue diver). Rich kom fra ABC og i hopinn hofdu baest einn fra Singapur, Adrian, og svo Koh fra Malasiu. I gaer aefdum vid hvernig madur aetti ad nalgast kafara sem hefur panikad a yfirbordinu og tekur engum fyrirmaelum og flengir ser a allt sem nalgast og reynir ad hanga a tvi. Eg og Rich vorum felagar ad sjalfsogdu og eg gerdi mitt besta til ad reyna drekkja honum en hann nadi mer ad lokum. Louisa aetladi svo ad lata Koh aefa sig a Rich (sem er stor og feitur amerikani) en Koh kafadi nidur og tok svo stefnuna a mig. "Panick! Herdis! Panick!" hropadi Louisa til min og eg fekk svo fyrirmaeli um ad gera mitt besta til ad drekkja litla Koh. Tetta var gaman og laerdomsrikt. I dag kofudum vid i kringum bryggjuna og Louisa atti vid hin ymsu vandamal ad strida sem vid turftum ad koma auga a og leysa. Og kindurnar minar her er bara gert grin ad teim sem laera i Koh Tao og hafa verdur serstaklega vokult auga tegar kafarar tadan eru med i hopnum. "Hver eru helstu vandamal sem kafarar eiga vid ad strida?" spurdi Louisa "teir laerdu i Koh Tao" er eitt af svorunum... Allavega a yfirbordinu ta aefdum vid bjorgunarondun og ad synda med fornarlamb a medan madur blaes i tad. Tar sem eg nadi tessu i fyrstu tilraun og lek gott raenulaust fornarlamb ta var eg dregin fram og til baka i hofninni. I lokin attu Rich, Koh og Adrian ad koma mer og Louisu upp a strond. Rich tok tetta mjog alvarlega og reif a mer lodarbeltid og henti gleraugunum minum i burt og turfti svo ad fara leita af hvoru tveggja eftir ad eg hafdi verid dregin upp a strond. En vid skemmtum okkur vel. A morgun forum vid ut med batnum og ta verdur liklegast buid ad tala vid vidskiptavinina og annad folk til ad leika fornarlomb sem eiga vid hin ymsu vandamal ad strida og eitthvad getur komid upp hvenaer sem er og vid verdum ta ad vera tilbuin til bjorgunar. Stud.

Konguloar frettir. Janae og David sem reka annad kofunarfyrirtaeki her, Dive Asia letu mig fa plast og limband til ad loka fyrir gluggann. Tott eg se ennta hikandi tegar eg fer inn a bad ta hef eg ekki komid auga a Karlottu eda adra kongulo i nokkra daga.

En kannski adeins um folkid hja B&J. Tad er Louisa, hun er einn af kennurunum, bresk og tveimur arum yngri en eg. Mjog fin og veit alveg hvad hun er ad gera. Martin ser um reksturinn a Salang utibuinu, tyskur, akkurat madur. Mjog reyndur kafari. Rick er dive master, fra Malasiu, fyndinn og tekur verndun koralrifsins mjog alvarlega, tvaer bilinn sinn i fristundum. Hann og Louisa eru kaerustupar. Jurgen, dive master, lika tjodverji. Hef litid talad vid hann, en hann virkar finn. Jay, kennari, med yfir 5000 kafanir a bakinu, fra Malasiu. Eg er svoldid hraedd vid hann... hann er svona typa sem laetur mann sitja ut i horni og hugsa um hvad madur gerdi rangt. Sham, lika kennari, hann er aldrei herna svo eg veit ekki meir... Svo er tad Lloyd. Forrikur Astrali, forritari, kemur reglulega og hangir herna i nokkra manudi. Tok kofunarkennarann hja B&J fyrir nokkrum arum. Hann er spes en fyndinn typa. Hann a snekkju sem er a Spani nuna. Hver a snekkju? Eg spurdi hann ad tessu. Fekk hana odyrt, atti ad kosta 1 miljon pund en hann fekk hana a halfa miljon...

miðvikudagur, maí 30, 2007

Salang

Ta er eg komin til Salang a Tioman eyju eftir langt og strangt ferdalag. Eg vaknadi um midja nott tann 27. til ad na morgun fluginu fra Bangkok. Eg flaug med Air Asia sem er svona laggjaldaflugfelag og tvi strangt med allan farangur. 15 kg hamark og ekki gramm umfram tad. Eg hafdi nu litlar ahyggjur tvi eftir ad eg sendi alla mynjagripina mina heim ta er nu litid i bakpokanum. Svo eg var med stora bakpokann, litla bakpokann og kapuna i handfarangur. Eg skellti svo bakpokanum a vigtina og viti menn hann var bara heil 19 kilo! og tad er ekkert i honum. Eg hundskadist aftur ur rodinni tvi eg aetladi ekki ad fara borga yfirvigt fyrir 4 kilo og stardi ofan i pokann til ad sja hvad eg gaeti nu tekid ur sem hefdi einhverja tyngd. Loks tok eg ur tvaer baekur, ohreinatauspokann og skipti ur flipflops yfir i sandalana. Eg for svo aftur i rodina og af einhverjum astaedum ta var strakurinn sem afgreiddi alveg endalaust lengi ad afgreida hvern og einn. Eg hef bara aldrei lent i odru eins. En svo gat eg ekki verid ful vid hann tvi hann hleypti mer i gegn med heilt 1,3 kilo umfram. Flugid og ad koma ser fra flugvellinum a rutustodina i Kuala Lumpur gekk svo afallalaust fyrir sig. Svo steig eg inn a rutustodina og annad eins kaos hef eg ekki upplifad. Tetta er algjort volundarhus. Fyrst eru fleiri, fleiri matarbasar. Svo eru fleiri, fleiri radir af pinulitlum midabasum. Allir fra sitthvoru fyrirtaekinu og allir ad fara a mismunandi stadi. Menn og konur standa fyrir framan og hropa ad manni hvert madur se ad fara "Singapur! Singapur!" var aftur og aftur kallad til min "Mersing! Mersing!" svaradi eg. Loks var mer bent a pinubas sem seldi mida til Mersing, en tar var enginn. Eg spurdist betur um en alltaf var mer bara bent a tennan toma bas. Einhver stelpa sagdi mer svo ad tad vaeri uppselt i allar rutur til Mersing i dag. Eg var ekki satt vid tad, enda hafdi eg ekki planad ad eyda miklum tima i Kuala Lumpur. Loks kom eg auga a pinubas sem seldi mida i naeturrutu til Mersing. En tad gekk samt illa ad koma konunni i skilning hvert eg vildi fara, tratt fyrir ad eg bara benti a Mersing 11 pm. Ja mer var ekki aetlad ad taka tessa rutu eins og seinna kom i ljos. Eftir ad hafa keypt rutumidann ta for eg ad lata geyma bakpokann minn. Eg gekk villt um volundarhus af solubasum tar til loksins eg fann farangursgeymslu. Eg hafdi nu heilan dag i Kuala Lumpur og akvad ad fara i fuglagardinn og svo i bio um kvoldid. Reyndar er Kuala Lumpur ekki eins stor og eg helt, tar bua bara 1,7 milljon og hun er mun snirtilegri og hljodlatari heldur en nokkurntima Bangkok. Tad er lika greinilegt ad madur er kominn i muslimskt land med moskvur ut um allt og islomsk og austurlensk motiv i byggingum.
Fuglagardurinn var mjog flottur en hann er tannig ad tad er buid ad tjalda neti yfir stort svaedi og svo eru fuglarnir bara frjalsir. Ad sjalfsogdu eru lika bur en ad er greinilega hugsad vel um fuglana. Svo for eg i bio, eina sem var i stodunni var ad sja Sjoraeningjana i Karabiahafinu. Eg vissi ad tetta yrdi taept, ad sja myndina til enda og saekja farangurinn, tvi tessar sjoraeningjamyndir eru alltaf svo langar. Eg var tvi vidbuin tvi ad lauma mer ut. Sem eg og turfti ad gera. En eg var eitthvad buin ad misreikna hvad tad myndi taka mig langan tima ad komast ut ur sjalfri risaverslunarmidstodinni sem bioid var i. Svo tegar eg loksins komst nidur a loftlestarstodina ta voru bara radir og radir i radirnar til ad kaupa mida. Leigubill hugsadi eg med mer og hljop ut. Sem tok sinn tima. En i Kuala Lumpur er ekki sama astand og i ollum ordrum borgum og baejum sem eg hef verid i undanfarna manudi tar sem ekki er tverfotad fyrir okutaekjum af ollum gerdum sem vilja keyra mann hingad og tangad. Nei tad var enginn leigubill i augsyn og tad tydir ekki ad veifa nidur bil hvar sem er, nei madur verdur ad vera a serstakri leigubilastoppustod. Svo eg stod a stoppustodinni og allir leigubilar keyrdu fram hja og eg horfdi a minuturnar lida og vissi ad eg myndi aldrei na i farangursgeymsluna fyrir lokun. Loksins stoppadi bill og eg hugsadi med mer ad kannski, bara kannski ef stelpan myndi ekki loka dyrunum a slaginu half ellefu ta myndi eg na tessu. En svo satum vid fost i umferdarteppu og ad lokum sagdi bilstjorinn ad tad vaeri bara best fyrir mig ad labba. Svo eg hljop af stad og nadi inn i rutustodina rett rumlega half. Nema hvad nu turfti eg ad finna aftur farangursgeymsluna i tessu volundarhusi. Loksins fann eg geymsluna og kom ad sjalfsogdu ad lokudum dyrum. Eg leit i kringum mig og sa ad eg hafdi nad ad velja einu farangursgeymsluna sem lokadi svona snemma. Allt i kringum mig voru geymslur sem voru med opid til allavega ellefu. Tad var tvi ekkert fyrir ad gera nema kaupa mida i rutu naesta morgun og labba yfir gotuna og tekka mig inn a hostelid tar. Sem er reyndar fint hostel og eg held eg gisti tar naest tegar eg er i Kuala Lumpur.
Morguninn eftir tok eg rutuna til Mersing og sem betur fer ta beid ferjan eftir rutunni sem var eitthvad sein. Eg var tvi komin til Salang seinnipartinn.
Folkid hja B&J tok vel a moti mer og fundu fyrir mig gistingu um nottina. En tad er vist skolafri i Singapur svo allt er bara fult. En oll gistiadstada her er mjooog basic. Tetta var tad dyrasta og jafnframt tad frumstaedasta sem eg hef gist i a ollu tessu ferdalagi. Og her tidkast ekki ad hafa vaska, tad er bara krani inn a klosetti. Skil tad ekki. Allavega i gaermorgun labbadi eg lengra upp strondina til ad finna odyrari gistingu og fekk agaetis kofa fyrir 500 RM a manudir (taeplega 10 tus. ) Nema tad er ad sjalfsogdu enginn vaskur. Og engin net fyrir gluggum svo allt kvikt kemst inn eins og eg komst ad raun um tegar i gaerkvold eg aetladi i minu mesta sakleysi ad fara a klosettid og a veggnum var su staersta kongulo sem eg hef sed. Ja eg yki ekki tegar eg segi ad hun var a staerd vid hendina mina. Eg oskradi og hun hljop inn a bad. Eg vissi ekki hvad eg atti ad gera vid kongulo af tessari staerdargradu. Eg tok upp sopinn og gekk hikandi ad klosettinu. Tetta var eins og atridi ur hryllingsmynd tvi eg sa svo bara einn fot vid dyrakarminn og svo hvarf hann. Naest sa eg hana hlaupa eftir veggnum a klosettinu og ta sa eg ad eg myndi aldrei geta drepid hana med kustinum. Eg notadi tvi kustskaftid til ad loka rennihurdinni og potadi svo mottum undir. Naest gekk eg skjalfandi nidur til B&J med tad i huga ad fa einhvern hugrakkan einstakling til ad leysa tetta vandamal fyrir mig. En eg fekk enga samud tar, Lloyd retti mer spreybrusa med podduspreyi og sagdi ad tetta myndi drepa hana a tveimur sekundum. Plus ad konguloin vaeri algjorlega meinlaus. Eg svaradi ad tegar eg kaemi til baka handleggnum fataekari ta myndi eg kenna honum um. Eg labbadi tvi til baka med spreybrusann i hond og tad tok mig nokkrar minutur ad hafa mig upp i ad fara aftur inn i husid. Eg opnadi inn a klosett en sa enga kongulo, eg tordi audvitad ekki fyrir mitt litla lif ad fara inn a klosettid til ad kikja a veggina sem liggja ad hurdinni. Eg spreyjadi tvi ohoflega inn a badid, lokadi og spreyjadi allt herbergid, lokadi og for ut. Verst ad eg var alveg ad pissa a mig.

Annars list mer bara vel a tetta. Tratt fyrir kongulaer. Folkid er fint og eg skrifa meira um tad seinna. Netid er fokdyrt og haegt herna. Eg aetladi ad reyna setja inn myndir af eyjunni og litla kofanum minum en eg veit ekki hvort tad se haegt. Hradinn er eins og a 28k modemi. En eg skal reyna.

föstudagur, maí 25, 2007

Verslunaraedi

Tad er nu meira hvad eg er buin ad spreda og brudla i dag. Eg er ad lata sauma a mig ullarkapu tar sem eg a enga vetraryfirhofn, svo eftir ad hafa verid i matun ta for eg i eina af risa verslunarmidstodunum herna og gekk um eins og nidursetningur i margtvegnum og tvaeldum fotum a milli D&G, DKNY, Channel, Cartier, Bvlgari og tess hattar fineris buda. Her var sko engin Zara eda H&M. Horfdi sorgmaeddum augum a oll finu fotin sem eg hef ekki efni a, toskurnar og skonna. Jii hvad eg hefdi getad eytt miklum pening tarna. Tad var utsala a ollu *andvarp*. Allavega mig vantadi bikini. Tratt fyrir ad hafa tekid med mer heil trenn bikini ta stendur bara eitt eftir. Eitt var skilid eftir i Mexiko. Eg turfti ad draga upp saumasettid og gera vidgerdir a odru og toppurinn er eiginlega a leidinni i ruslid og tar med stendur bara eitt eftir. Og aftur er eg ad vera a sundfotunum einum klaeda i einn og halfan manud. Ta gengur ekki ad eiga bara eitt bikini. Tannig ad eg gekk mig inni risa sundfatadeildina (allar deildir voru a staerd vid Kringluna i tessari verslunarmidstod) i teirri von ad kannski, bara kannski gaeti eg trodid mer i litlu asisku bikniin og ad kannski vaeri verslad inn med stora vestraena turista i huga. Eg matadi svona 30 bikini og endadi a tvi ad versla mer eitt bleikt. Ef eg vaeri adeins grennri ta hefdi eg haft mun meira urval. Erna verdandi fru kind hefdi eflaust fengid valkvida.
Og eins og kapu- og bikinikaup seu ekki nog ta aetla eg ad vera grand a tvi og barasta fljuga til Kuala Lumpur, tad verdur sko ekkert skrollt i lest i 32 klukkutima. Ja eg er buin ad taka akvordun og naesta eina og halfa manudinn ta verd eg a Pulau Tioman ad laera ad verda kofunarmeistari hja B&J sem eg linkadi a i sidasta posti.

fimmtudagur, maí 24, 2007

Kofunar meistari

Eg er komin aftur til Bangkok. Svaf a strondinni tar til ferjan for yfir a meginlandid og sat svo i rutu treitt og tunn. Ja i Koh Tao rakst eg a Shinji japanska vin minn, hann var ta buinn ad vera tar i viku og tar adur i 9 daga i Bangkok. Ad gera ekki neitt eins og venjulega. Shinji flakkar fra einum stad yfir a annan og er svo bara ad hanga. Skodar ekkert. Eina astaedan fyrir tvi ad hann sa eitthvad af Phnom Penh var vegna tess ad eg var ad fara skoda allt saman og hann akvad ad fljota med. Svo sat hann og andvarpadi tvi honum finnast sofn svo leidinleg, sagdist aetla ad bida fyrir utan en svo birtist hann alltaf eftir sma stund. Og hvad gerdi hann i 9 daga i Bangkok, ju hann vaknadi, hann fekk ser morgunmat og hadegismat og svo bjor a kvoldin og hundleiddist.

En afhverju er eg komin aftur til Bangkok, afhverju er eg ekki a strondinni a Koh Samui adur en eg fer i risa partyid a Koh Phanang. Ju eg tjaist af ferdatreitu og mig langar bara til tess ad vera a einum stad og kafa meira. Eg hef tvi akvedid ad laera ad vera dive master. Eg er tvi a skipuleggja tad og aetla ad fljuga hedan til Kuala Lumpur. Fyrir ekki kofunarfolk ta er dive master manneskja sem adstodar kofunarkennara og leidir hopa um kofunarstadi, svona guide. Tegar madur er ad laera ad verda dive master ta tarf madur ad lesa mikid og taka prof og tess hattar. Svo kafar madur mikid og hjalpar til hja kofunarfyrirtaekinu og laerir hvernig allt virkar og gengur fyrir sig. Er svona laerlingur. Madur getur hlaupid i gegnum tetta a 3 vikum en yfirleitt er folk i einn og halfan manud. Eg er buin ad vera skrifast a vid ymis kofunarfyrirtaeki i Malasiu og er svona naestum tvi buin ad akveda mig hja hverjum eg verd. Ef tad er laust hja B&J diving center a Tioman eyju ta er eg ad fara tangad. Fyrst var eg ad skoda fyrirtaeki sem kafa vid Sipadan eyjuna en tad eina sem mer leist vel a var ekki med laust plass fyrr en i juli. Pulau Tioman var kosin af held eg national geographic sem ein af 10 fallegustu eyjum i heiminum 1970 og eitthvad. Tetta aetti tvi ad vera agaetis stadur til ad hanga a i ruman manud. Ef eg geri tetta ta fer eg orugglega ekki til Laos, nema eg sjai odyrt flug fram og til baka fra Kuala Lumpur. Eg se til hvernig peningamalin verda undir lokin. Eg se ta lika takmarkad af Taelandi, bara Bangkok og Koh Tao...

En eg er ekki fra tvi ad eg sakni Kambodiu. Tad var bara eitthvad svo heimilislegt ad runta um a slaemum malarvegum med bupeningin roltandi yfir veginn. Fyrir framan hvert hus voru haenur med ungaskara og svin liggjandi i drullupollum. Taeland er eitthvad svo sterilt midad vid tad, eda tad litla sem eg hef sed. Sem eru audvitad bara turistastadir. Tannig ad kannski eru tad solbrenndu bresku stelpurnar i hotpants og bikinitop sem fara i taugarnar a mer. Engir svoleidis turistar i Kambodiu, nema i Siem Reap tar sem taer koma i helgarferd fra Taelandi. Kannski ef eg hefdi nennu til ad fara nordur ta myndi eg sja adra hlid a landinu.

sunnudagur, maí 20, 2007

Hafid blaa

uff hvad eg var ad borda sterkt karri. Mig bara svidur ennta i varirnar. Eg er buin ad vera fikra mig nidur karrilistann og i kvold var tad jungle karri. Eg fekk slaema tilfinningu um leid og eg var buin ad panta tad. Svo kom skalin og eg bara sa hvad karriid var sterkt og ekki batnadi tad tegar konan kom obedin med vatnsglas og setti hja litlu kokdosinni sem eg hafdi pantad sem drykk. Og tad var sterkt, mig bara verkjadi i munninn undan efnabrunanum, en eg traeladi tessu i mig a medan lak ur nefinu a mer og svitinn spratt fram.

Allavega, eg er stodd a Koh Tao, taelensk eyja fyrir ta sem ekki vita. Hingad kemur folk helst til ad kafa enda er ekki tverfotad fyrir kofunarfyrirtaekjum. Til ad komast hingad ta tok eg naeturrutu fra Bangkok, var vakin kl 3 um nottina og sett ut asamt odru svefndrukknu folki a bidstod fyrir ferjuna. Tar var bidsalur med bastmottum a golfinu og pudum. Eg breiddi ur svefnlakinu minu og nadi ad leggja mig sma. Vaknadi svo tegar feit tysk kona gekk a milli folks og spurdi hvort tad vaeri ad fara kafa og hvort tad vaeri buid ad boka "are you diving? are you diving? have you booked already?" heyrdi eg endurtekid i sifellu. Hun var ta ad reyna fa folk til ad boka gistingu hja ser. Mer leist ekkert a hana og horfdi tortryggnum augum a baeklingana sem hun breiddi ur fyrir framan mig og jafnvel tegar hun dro upp lonely planet bok til ad syna mer ad folkid sem skrifar ta bibliu maelti med kofunum hennar. Hun lofadi mer tvi ad ef eg bokadi hja henni nuna ta myndi einhver bida eftir mer a bryggjunni og skutla mer a hotelid hennar. Eins og tad vaeri eitthvad vandamal.
Klukkan 6 kom ruta og skutladi okkur nidra bryggju og svo var duggad til Koh Tao. Um bord voru ad sjalfsogdu menn fra mismunandi kofunarfyrirtaekjum sem settust hja manni med moppurnar sinar og baeklingana. Eg skodadi allt vandlega og valdi svo tann stad sem baud upp a odyrustu gistinguna en er jafnframt finasta resortid a Koh Tao. Eru bara med godan dil fyrir folk sem kafa hja teim. Eg er ad sjalfsogdu ekki i svona finu bungaloi heldur bara i litlu herbergi sem teir syna audvitad ekki a sidunni. En eg get legid vid sundlaugina og a strondinni a bekkjum og fae strandhandklaedi og svoleidis fineri. Eg for svo ad kafa i dag og i gaer og tad var svo gott ad komast aftur i vatnid. Tegar eg for ad skra mig i kafnanirnar ta var tar Rich divemaster sem tok nidur upplysingar um mig og allt sem eg sagdi endurtok hann med upphropunarmerki. Advanced! 65 dives! Svona tipiskur breti sem vinnur a turistastad. Allavega i fyrstu kofuninni ta sa eg mer til mikillar gledi mina fyrstu scolymiu og svo vard eg sorgmaedd tegar eg attadi mig a tvi ad tad vaeri ekkert koralnord nalaegt til ad samgledjast med mer.
Eg se lika nuna hvad allir i Pez Maya voru ordnir godir kafarar og hvad tad er gott ad kafa i hop tar sem allir vita hvad teir eru ad gera, ekkert vesen. I gaer ta vorum vid frekar blandadur hopur og einn sem var ad kafa sinu fyrstu kofun a eigin vegum og hann audvitad spaendi i gegnum loftid og var med eyrnavesen. I dag ta vorum vid bara tvo asamt gaedinum sem var lika kennari og einn sem er ad laera ad vera divemaster. Madurinn var svisslendingur og buin ad vera sumarleyfiskafari i morg ar og var svo gladur ad hafa mig sem buddy. "Mikid er gott ad vera med einhverjum sem kann ad kafa og er ekki ut um allt" sagdi hann eftir fyrstu kofunina. Seinna um daginn rakst eg a hann i sundlauginni og hann kynnti mig fyrir konuninni sinn sem besta buddyinn sem hann hefdi nokkru sinni haft. Eg vissi ekki hvad eg atti ad segja og bara brosti vandraedalega. Madur hefur greinilega laert eitthvad af tjalfuninni i Pez Maya.

Ok eg skal haetta ad tala kofunarsnobb...

fimmtudagur, maí 17, 2007

Komin i nutimann

I gaer tok eg rutu fra Siem Reap til Bangkok, og tad var loooong rutuferd. Vegurinn milli Siem Reap og landamaeranna er einhver sa versti i Kambodiu og gengur su saga ad visst flugfelag sem einnig er tad eina sem flygur til Siem Reap se ad borga vissum stjornmalaflokki vissa upphaed til ad geyma ad lagfaera tennan veg tar til sidast. Rutan var lika alveg edal. Hun var ekki med farangursgeymslu og tvi var ollum farangri trodid i tau plass tar sem ekki sat folk. Eg sat aftast med fjall af toskum fyrir ofan mig og vid hverja dyfu ta turftum vid a aftasta bekk ad stydja vid fjallid. Tad tok 7 tima (med 20 hadegispasu) ad keyra ruma 120 km. Tad tok enga stund a komast yfir landamaerin og tvilikur munur a tessum 100 m. Kambodiu megin stokkladi madur a milli steina til ad vada ekki ledjuna upp i okla. Taelandsmegin var audvitad allt malbikad og steypt. Eg steig upp i fina rutu med ofsalega finum bleikum blundugardinum, og svo var ljuf okuferd til Bangkok. Engir brjaladir okumenn. Her er vinstri umferd, ekki bara svona allrahanda og eftir behag eins og i Kambodiu og Vietnam. Enginn gedveikislegur framurakstur. Ekki tad ad eg a eflaust eftir ad upplifa tad lika herna, bara ekki a tessum vegakafla. Tegar vid nalgudumst Bangkok ta stardi eg storeygd a risavaxin umferdamannvirkin, tad var eins og eg hefdi stokkid 30 ar fram i timan og eg la a glugganum eins og sveitastelpa nykomin af molinni og gapti tegar hahysin i Bangkok komu i ljos. Ja Taeland a sko meiri pening heldur en Kambodia og Vietnam.
En svo hofst leitin ad herbergi og tad var sko martrod. Rutan stoppadi vid hinn fraega Kaosan veg tar sem ollum bakpokaferdalongum er hent ut. En sa vegur og gotur i kring eru bara okur turistahverfi. Og eg bara neitadi ad borga 7 dollara fyrir rum i geymslustoru herbergi med adgangi ad sameiginlegu badi fyrir alla haedina. Tegar fyrir 5 dollara i Kambodiu fengi madur huggulegt herbergi med kabalsjonvarpi. Jafnvel 4 dollara. Eg var i samfloti med pari fra Uruguay og manni fra Argentinu og tau voru a sama mali. Eg og Paolo satum svo uppgefin a gangstettabrun og holludum okkur aftur a bakpokana a medan parid for og tekkadi verdid og standardinn a enn einu gistiheimilinu, ta gengu fram hja tvaer stelpur og spurdu hvort okkur vantadi herbergi. Taer bentu okkur a gistiheimilid sem taer vaeru a. Vid forum tangad og tar fekk eg herbergi med klosetti a 190 baht, eda 5,6 dollara. Tad dyrasta sem eg hef gist i midad vid standard. Hef audvitad gist i dyrari herbergjum en madur fekk ta lika fint herbergi. Tetta var bara beddi og klosett, punktur, og stubbalykt inni en tetta var eina einstaklingsherbergid med klosetti sem var laust og klukkan var ordin half tolf og mig langadi ad fara sofa.
I morgun keypti eg mida til Koh Tao og tek rutuna a eftir, verd komin a strondina a morgun :) jibby!

mánudagur, maí 14, 2007

Magakveisa

Eg vil bydja Bryndisi afsokunar a tvi ad hafa ekki bloggad i gaer en eg var vant vid latin, sitjandi a klosettinu a medan eg aeldi i vaskinn. Sem betur fer er klosettid i herberginu minu nogu litid til tess. Ja eg nadi loksins ad naela mer i almennilega matareitrun og eg hef ekki hugmynd um hvad eg bordadi sem olli tessum oskopum tar sem dagurinn i fyrradag var einn af teim fau sem eg bordadi ekki a einhverjum vafasomum stad. Eg vaknadi um morguninn tilbuin i dag nr. 2 i Angkor, eg var nu ekki alveg 100% en helt ad tetta vaeri bara svona sma magakveisa eins og eg hef fengid nokkrum sinnum. Svo eftir tvi sem leid a morguninn ta vard mer bara meira og meira flokurt og eg bad moto-strakinn minn bara um ad skutla mer a gistiheimilid. Eg lagdist ormagna og tjad i rumid og svo hofust regluleg hlaup a klosettid. Og tetta var sko aldeilis hreinsun i lagi. Jonina Ben myndi vera stolt. Eg held ad likaminn hafi bara losad sig vid hverja eina einustu matarordu sem var i meltingarkerfinu. Tessu var svo lokid seinnipartinn en eg er nu ennta slopp. Svo i morgun reif eg mig uppur ruminu til ad klara skoda hofin, en eg slepti samt nokkrum og var komin aftur a gistiheimilid upp ur hadegi. Fyrst keyrdum vid langan veg til ad skoda Bantaey srei sem er svo finlega byggt ad sagan segir ad tad hljoti ad hafa verid byggt af konu tvi engin karlmadur gaeti gert svona fingerdan utskurd. Eg hefdi nu notid tess betur ad skoda tetta lita fallega hof ef tad hefdu ekki verid tvaer rutur fullar af koreu buum ad skoda hofid um leid og eg. Eg staldradi tvi stutt vid, sem var synd tvi tad tok svo langan tima ad keyra tangad. En tad var gaman ad keyra i gegnum sveitina i Kambodiu. Naest var eg sett ut vid Bantaey samrei sem vegna frekar einangradrar stadsetningar hefur vardveist vel. Tar voru bara nokkrar hraedur auk min tannig ad tad var frekar fridsaelt ad rolta tar um. Svo var ferdinni haldid til Prea nean poan (eda eitthvad svoleidis, gleymdi bokinni aftur...) Sem er litid hof umkringt storri laug sem er svo umkringt fjorum minni laugum. Tetta allt saman var svo stadsett i vatni her i denn, en nuna er ekkert vatn, bara gras. Sidasta hofid var Prea nean sem er frekar stort og kongurinn bjo tar a medan verid var ad byggja Angkor Tom. Eg for svo aftur ad skoda Bayon til ad taka myndir. Tott ad Angkor Wat se staerst og mikilfenglegast af ollum hofunum ta eru hin ekki sidri. Hver bygging stor og med turnum og endalausum gongum og umkringd sykjum sem eru longu tornud upp. Tetta er bara allt a einhverri staerdargradu sem eg er ennta ad reyna atta mig a.
Seinnipartinn for eg i mynjagripaleit. Eg fann ekkert sem mig langar i. Aetladi audvitad ad kaupa hid hefdbunda pudaver, sem vaeri ad sjalfsogdu ur silki en eg fann ekkert sem mer fannst flott. Eg fer tvi fra Kambodiu med ekkert nema silkislaeduna sem eg keypti fyrir hana modur mina og svo armbond sem soluglod born fyrir utan Prea nean neyddu upp a mig svo ad tau kaemust i skola ad eigin sogn. Ja eg fann svo lika armbond fyrsta daginn i Angkor, mig langadi ekkert i tau og reyndi ad gefa tau solubornunum svo tau gaetu selt tau fyrir 1 dollar en an arangurs... Eg aetladi til Taelands a morgun en eg veit ekki hvort eg hafi orku i 13 tima rutuferd til Bangkok. Kannski eg hvili mig i einn dag i vidbot adur en eg legg af stad i langferd.

laugardagur, maí 12, 2007

Angkor

Angkor Wat

Ja ta er eg buin ad sja hid heimsfraega Angkor Wat. En dyrdinni er ekki lokid enn, tad eru fjoldamorg hof eftir til ad skoda. Eg keypti mer triggja daga passa og a tvi tvo daga eftir af hofum. Guda-kongarnir i Angkor voru sko byggingagladir.
Eg kom til Siem Reap i gaer og fyrir utan rutuna beid herskari af moto og tuktuk okumonnum veifandi spjoldum med nofnum af gistiheimilum. Tegar eg steig nidur ur rutunni ta turfti eg ad troda mer i gegnum tvoguna til ad komast ad farangursgeymslunni og allir kinkudu brosandi kolli "you come with me" og spurdu hvada bakpoka eg aetti. I ollu tessu ongtveiti ta heyrdi eg yfirvegad og kurteisilegt "excuse me, do you have a hotel?" med tyskum hreim. Eg leit upp og tar var hvitur madur sem rolega retti mer spjald med gistiheimilinu sinu. A medan veifudu okumennirnir storu spjoldunum sinum eins og odir og hropudu hver upp i annan og mattu hafa sig alla vid ad gripa ekki bara i mig og draga mig og bakpokann ad tuktuknum sinum. Ja kurteisi virkar vel a mig svo eg for med austurrikismanninum. Gistiheimilid hans er lika vel stadsett. Hann benti einum tuktuk okumanni a ad taka bakpokann minn og vid eltum hann svo ad tuktuk-num. Austurrikismadurinn for svo a turistaveidar en eg var keyrd a gistiheimilid. Eg eyddi eftirmiddeginum i tad ad tukla a silki og reyna ad plana hvada hof eg aetladi ad skoda af ollum tessum fjolda. Um kvoldid eignadist eg nyja vinkonu. Eg aetladi ad fara horfa a sameiginlega sjonvarpid og tar var fyrir hvit kisa. Um leid og eg nalgadist ta gerdi hun sig tilbuna til ad leggjast i kjoltuna a mer. Eg er natturulega med ofnaemi og tad var ekki planid hja mer ad sitja med kott i fanginu en hun var svo akvedin i tvi ad liggja hja mer ad eg gat bara ekki neitad skitugu kisunni. Hun kurdi hja mer allt kvoldid. Tegar einn af starfsmonnunum kom til ad horfa a sjonvarpid med mer ta hvadi hann "hvad ertu ad gera med tessa kisu, hun a ekkert heima her" Ja tad bua trir kettir a gistiheimilinu en tessi kisi er ekki einn af teim.

I dag fekk eg mer motodriver og hann keyrdi mig a milli hofanna. Tad er nu svolitid magnad ad keyra i att ad Angkor Wat. Madur ser fyrst hid feykistora siki sem liggur i kringum tad og svo keyrir madur eftir sikinu og ser svo vegginn i gegnum grodurtykknid svo allt i einu koma turnarir i ljos. Tvi midur var birtan ekki god i morgun svo myndirnar sem eg tok eru ekkert spes. Eg setti samt inn nokkrar en a audvitad miklu fleiri innan ur byggingunni sjalfri. Eg rolti tarna um i nokkra klukkutima og tad liggur vid ad hver einasti steinn se med uthoggnum myndum eda skrauti. Ad sjalfsogdu var allt krogt af folki. Svo langadi mig ad skoda Ta Phrom sem hefur eiginlega bara verid latid vera eins og tad var tegar tad fannst. Mestur grodur hefur verid skorinn i burtu en staerstu tren latin standa. Hofid samanstendur tvi af halffollnum byggingum med mistorum trjam standandi upp ur takinu eda med storar trjaraetur vafdar um steinana. Eg nadi nu ad villast tarna inni og aetladi aldrei ad finna rett hlid tar sem moto-strakurinn beid. Adur en vid komum til Ta Phrom ta stoppudum vid vid tvo onnur hof sem eg man bara ekki hvad hetu... tarf ad kikja i bokina svo eg geti merkt myndirnar rett. Tegar eg tok sidustu myndina i Ta Phrom ta klaradist batteriid i myndavelinni minni. Moto-strakurinn stoppadi vid enn eitt hofid sem eg man ekki hvad heitir a leidinni til Angkor Tom. Tegar eg kom tadan ta byrjadi ad rigna og tad var eins og helt ur fotu. Sem betur fer stytti upp um leid og vid komum til Angkor Tom. Nu Angkor Tom er borg sem var byggd a eftir Angkor Wat, tetta er risastort svaedi umkringt siki sem i voru vist storir krokodilar her i denn. Tar fyrir innan eru nokkur hof og stor 350 m pallur tar sem Gud-kongurinn sat og horfdi a syningar. Tar sem pallurinn er tar er einnig afgirt svaedi med storum steinvegg og tar fyrir innan stort hof. Svaedid er skogivaxid og eg nadi ad villast tar inni audvitad og aetladi aldrei ad finna utgangshlid. Tegar eg loksins nadi ad komast ut ta blasti vid mer ... hofid (eg aetladi sko ad taka med mer bokina, hun gleymdist). Stort hof sem i upphaf 20. aldar var byrjad ad endurbyggja. Tad var tvi ad mestum hluta rifid nidur og skrad nidur vel og vandlega hvar hver steinn var. Taer skrar voru svo eydilagdar af raudu Khmerunum svo fornleifafraedingar sitja nuna uppi med risastort pusluspil... Eg nadi loksins ad koma mer ut ur skoginum og finna Bayon hofid. Sem er annsi magnad en tad er ekkert nema turnar sem eru gerdir ur 4 andlitum tannig ad tegar madur gengur um efri haedina ta blasa vid manni stor andlit ur ollum attum. Eg aetla ad fara tangad aftur a morgun og taka myndir.

Eg verd herna sem sagt i tvo daga i vidbot og svo er ferdinni haldid til Taelands.

miðvikudagur, maí 09, 2007

Brudl

Eg akvad ad verda vid osk Bryndisar og blogga aftur. I hadeginu fekk eg nog af hrisgrjonum, tetta hrisgrjona otol mitt hefur reyndar att ser langan addraganda en nuna i hadeginu ta var tad einu grjoni of mikid. Tannig ad eg akvad ad kikja a Mick & Craigs og tad var oskop heimilislegt ad lita a matsedilinn og sja bara svinakotelettur og kjukling cordon bleu i adalrett. Enging steikt hrisgrjon eda nudlur. Og a foninum voru medal annars Nick Drake og Stevie Wonder. Tetta var samt dyrari veitingastadur en eg fer venjulega a, rettirnir i kringum heila 6 dollara. En i dag var pastadagur, urval af pasta og pastasosum med salati og hvitlauksbraudi a 4 dollara. Eg fekk mer hakk og spagetti. Og sukkuladiis i eftirrett. Tad og bjorinn kostadi mig 6 dollara. Ja eg veit, eg veit eg er a budgeti. En tad var bara agaett ad hafa hreinan duk a bordinu med engu plasti yfir og husgognin i godu astandi.

Tad var bara kalt og skyjad i dag svo eg er a leid til Phnom Penh a morgun. Er ekki alveg buin ad akveda hvadan eg fer tadan. Hvort eg fari til Kratie ad skoda sjaldgaefa hofrunga eda Battangbang ad skoda... eg veit ekki... hof? eda bara beint til Siem Reap ad sja hid mikla Angkor Wat og svo til Taelands.

En hvad gerdi eg i dag? mest litid. Rolti nidur a strondina tratt fyrir skyjafarid og fljotlega var vinkona min maett sem hefur sed um ad fjarlaegja oaeskileg har af leggjunum minum sidastlidna daga. Eg leifdi henni ad traeda af harin aftan a laerunum i gaer, eg vard svo ad stoppa hana tegar hun gerdist mjog metnadarfull og var byrjud a bikinilinunni aftanfra. En i dag hardneitadi eg ad leifa henni ad gefa mer fotsnyrtingu, en tar sem hun hafdi litid annad ad gera ta nuddadi hun tigerbalm oliu a moskitobitin min og flettadi eina flettu i harid mitt. Folkid her veit ekki hvad personulegt rymi er og situr alltaf mjog nalaegt manni, helst svolitid a manni. Bornin sem selja armbond a strondinni koma og setjast a mann og bjoda manni armbond og tegar madur neitar ta sitja tau afram eda half leggjast yfir mann og spjalla. Konurnar sem bjoda upp a handsnyrtingar og hareydingar setjast til fota hja manni og strjuka a manni leggina, hvitari leggi hafa taer ekki sed svo taer standast ekki freystinguna "very beautiful" hvisla taer.

Tad er tvennt sem eg hef tekid efti med Vietnamska og Kambodiska karlmenn. I fyrstalagi ta hlaeja teir mjog undarlega. Alveg svona tipiskt thihihi fliss. I odrulagi ta eru teir allir med mjog langar neglur a vinstri hendi. Sem er frekar ogedslegt, eg er ad tala um neglur 1 - 2 cm a lengd, gular og skitugar.

þriðjudagur, maí 08, 2007

Fost a strondinni

Ream tjodgardurinn

Hvad er ad gerast med hana Herdisi, hun er alveg netod! Ja svona gerist tegar netid er vid hlidina herberginu minu... eg raed ekki vid mig. Eg er enn i Sihanoukville og nenni ekki ad fara hedan. Tott tad rigni a morgnana ta er sol eftir hadegi og tad er alveg nog. Eg for i Ream tjodgardinn i dag. Eg steig inn i minibusinn og heilsadi, "Alo!" heilsadi minibusinn a moti. Hann var fullur af frokkum.
Tjodgardurinn naer yfir baedi skoglendi, leiruvidarskoga og sjoinn. Vid silgdum eftir anni i leiruvidarskoginum og gegnum svo i gegnum skoginn ad strond. Tar var synt og adeins lagst i solina. Tad var agaett ad liggja a strond an tess ad heyra "you buy bracelett miss", svo var gengid til baka og bordadur sidbuinn hadegismatur i litlu torpi en um 40 fjolskyldur bua i tjodgardinum. Hadegismatnum deildum vid med fjoldanum ollum af hundum, hvolpum, haenum og kjuklingum. Haenurnar voru ekki smeikar vid ad vada i hundana og svo sa madur eina hlaupa eins og vindurinn med halft baguette i gogginum. Ferdin gekk mjuklega fyrir sig svo eg hef engar skemmtilegar sogur af folki fallandi fyrir bord eda skelfingu i frumskoginum. Reyndar var ansi grunnt i anni svo stundum turfti tjodgardsvordurinn og turgaedinn okkar ad hoppa fyrir bord og yta batnum. Ahh svona ferdir gera bara ekki godar ferdasogur.

sunnudagur, maí 06, 2007

Upp, upp, upp a fjall

Bokor

Eg er nu komin i strandbaejinn Sihanoukville. Er a gistiheimili nokkrum metrum fra strondinni. Hjordisi lettir kannski vid ad heyra tad ad eg let traeda lodnu leggina og teir eru nu harlausir. Ja eg fekk ekki frid fyrir konunum sem ganga a milli kvenfolksins a strondinni og bjoda upp a hand og fotsnyrtingu auk hareydingu med svona traedi. Taer hofdu bara aldrei sed jafn lodinn kvenmann. A medan konan var ad taeta af mer harin ta stoppudu stollur hennar og toku andkof, teygdu svo fram fingurna og letu ta sokkva ofan i feldin a loppunum a mer, "many hair" sogdu taer "yes, many, many hair" samsynti konan. Hun vildi svo endilega snyrta a mer taneglurnar og taka af mer siggid en eg sagdist geta gert tad bara sjalf "massage?" spurdi hun ta vongod.

Fra Phnom Penh toku eg og Marieke rutu til Kampot. Tad sem er markvert ad sja tar er Bokor tjodgardurinn sem er med yfirgefid franskt torp, ad nafni Bokor, upp a Bokor fjalli. Tegar vid stigum ur rutunni ta tyrptist ad okkur hopur ad monnum, veifandi myndum af gistiheimilum. Tad versta var ad vid vorum einu turistarnir tarna. Reyndar voru eldri astrolsk hjon i rutunni en tau hofdu a undraverdan hatt horfid strax. Tetta var allt of mikid fyrir okkur tar til Marieke hropadi loksins upp "hver er med odyrasta loftkaelda herbergid!" Einn madur sagdi ad a synu gistiheimili sem vaeri nytt og fint gaetum vid fengid loftkaeld herbergi fyrir 7 dollara. "Same, same!" hropudu hinir. Vid akvadum ad kikja a nylega gistiheimilid sem vaeri ta liklegast hreinast. Herbergid var fint, en fjolskyldan sem rekur heimilid vildi fa 8 dollara, vid minntumst a 7 dollara lofordid "ah, my brother" kinkadi einn kolli og hlo. Vid fellumst a 8 dollara. Svo kom babb i batinn, eftir ad hafa eytt deginum labbandi um baeinn ta komum vid upp a herbergi og fottudum ad loftkaelingin virkadi ekki. Tad var ekkert annad herbergi laust med loftkaelingu svo vid urdum ad lata viftuna duga (fengum ta herbergid a 4 dollara) og svo laum vid bara og svitnudum. A baejarroltinu hofdum vid bokad tur upp a Bokor fjallid. Gistiheimilid okkar baud upp a sama tur en vildu bara fa meiri pening fyrir hann. Um morguninn vorum vid sottar og keyrdar yfir a hitt gistiheimilid, eftir sma stund kom annar strakurinn sem hafdi sott okkur og sagdi ad folkid a Bokor hafi bara verid ad hringja rett i tessu og tad hafi vist fallid tre a veginn svo teir yrdu ad fresta ferdinni tangad til a morgun. Mer fannst tetta eitthvad skritid og grunadi ad hin raunverulega astaeda vaeri nu frekar ad adeins eg og Marieke hefdum skrad okkur i ferdina. Marieke var ad fara daginn eftir til Taelands og Bokor tjodgardurinn hafdi verid eina astaedan fyrir tvi ad hun kom til Kampot. Hun var tvi ekki anaegd. Strakurinn taladi nu ekki goda ensku en eg spurdi hann nanar ut i tred a veginum og ta var tad ekki bara tre heldur lika stor steinn sem hafdi fallid a veginn. Gjorsamlega ofaert. Vid bordudum morgunmatinn okkar og fengum ferdina endurgreidda svo roltum vid aftur a gistiheimilid okkar. Um leid og vid nalgudumst ta kom einn madur hlaupandi "var ferdinni ykkar frestad" kalladi hann. Vid jankudum tvi. Fleiri menn baettust i hopinn "hvada afsokun komu teir med" spurdi einn. "Tre og steinn a veginum" svaradi eg. Ta hlou teir "teir hafa ekki verid med nogu marga" sagdi einn hlaejandi. Madurinn sagdi ad tad vaeri laust plass i turnum hans, 8 dollarar, tveim dollurum odyrara en daginn adur... Vid Marieke fellumst a tad og aftur trodumst vid tvaer a moto til ad na pick up bilnum sem var lagdur af stad. Svo hofst tveggja tima hoss upp vegslodan sem liggur upp a fjall. Vid satum 6 aftan a palli a trebekkjum med sma puda undir rassinn. Ekki hin taegilegasta fer en eins og eg sagdi vid Marieke, eftir filaferdina ta getur ekkert toppad tau otaegindi "var ad hugsa tad nakvaemlega sama" svaradi Marieke. En leidin upp a topp var mjog falleg grodurinn fallegur, mikid af fuglum og fidrildum og af og til sa madur til hafs i gegnum grodurtyknid. Tegar upp a topp var komid ta blasti vid utsyni yfir Taelandsfloa og svo audar byggingar. Flestar byggingarnar eru fra 1920 en torpid var yfirgefid upp ur 1970 tegar raudu Khmerarnir foru ad lata til sin taka. Tarna var svo hart barist milli raudu Khmeranna og frelsishers Vietnams 1979 og sidan 1980 ta hafa byggingarnar stadid audar. Mikilfenglegasta byggingin er stort hotel, sem einnig var casino (islenska ordid er alveg stolid ur mer), litur ut eins og ekta draugakastali. Madur getur farid inn i allar byggingarnar en taer hafa verid stripadar alveg nidur, jafnvel buid ad taka rafmagnslagnirnar. Tad var soldid skritid ad labba tarna um. A leidinni nidur baettust vid trir adrir fartegar. Kanadiskur fuglakarl sem hafdi gist tarna og vantadi far nidur og svo tvaer nunnur, en hjolid teirra var bilad. Tad var tvi trongt a tingi a pallinum a leidinni nidur. Eg og fuglakarlinn Michael gatum spjallad saman um fugla og liffraedi, Sian Ka'an, i Mexiko er fraegt fyrir fuglamergd. Svo skemmtilega vildi til ad vinkona hans sem er sjavarspenndyrafraedingur var einnig i Kampot. Hun hafdi medal annars komid ad slettbaksrannsoknum undanfarin 10 ar og tekkti tvi vel til SOTW. Michael vildi endilega ad eg og Marieke bordudum med teim kvoldmat og audvitad hofdum vid ekkert a moti tvi. Eg verd ad vidurkenna ad tad var gaman ad geta talad sma liffraedital. Tott ad Marieke se fin ta er hun tvitugur listaskolanemi og tvi ekkert ad spjalla um blomin og byflugurnar.
Daginn eftir lagdi Marieke af stad til Taelands en eg hafdi planad ad skoda nokkra af hinum morgu hellum sem eru i kringum Kampot. Eg gerdi dil vid Jock, einn af fjolskyldumedlimunum sem reka gistiheimilid, um ad runta med mig til hellanna a motorhjolinu sinu. Ja hann atti alvoru motorhjol, ekki bara svona litla vespu. Ja, Jock var sko meira en til i tad, svo aestur i raun ad hann nadi i motorhjolid sitt sem var bilad a verkstaedi. Eg vissi audvitad ekkert um tad. Svo logdum vid af stad um sveitavegina i Kampot sem er mjog fallegt herad. Vid komum ad fyrsta hellinum sem i er rumlega tusund ara gamalt altari fyrir Shiva, og hefur vardveist mjog vel i hellinum. Verst ad eg nadi engum godum myndum af tvi, tad var of dimmt. Svo var haegt ad klongrast ur teim helli yfir i annan, sem vid og gerdum, med barnaskarann a eftir okkur. Tegar ut var komid ta gat eg sed ad Jock var kominn med nog af tessu klongri svo spurdi hann hvort eg vildi ekki bara fara og synda i nalaegum fossi. Tessir hellar vaeru allir eins. Seinna um kvoldid ta jatadi hann drukkinn fyrir mer ad hann hefdi heldur ekki viljad keyra svona langt a hjolinu, tvi tad vaeri nu eiginlega bilad. Sem var astaedan fyrir tvi ad eg turfti alltaf ad yta tvi i gang. Tad stoppadi hann samt ekki i tvi ad gefa mer kennslustund a hjolinu og leifdi mer ad keyra langleidina i baejinn. Eg turfti ad koma vid a gistiheimilinu til ad fara i sundfot, tegar eg kom svo nidur ta var enginn Jock sjaanlegur. Eg settist nidur og beid, og beid svo lengur og svo pantadi eg mer hadegismat, klaradi hann og beid. Eftir klukkutima ta nennti eg ekki ad bida lengur og aetladi ad fara upp a herbergi. Stoppadi samt adeins til ad knusast i hvolpunum sem heldu til vid troppurnar. Ta kemur Jock hlaupandi, tad hafdi sprungid a hjolinu. En eg var ta ekki i neinu sundstudi.
I dag tok eg svo leigubil med bandarisku pari hingad til Sihanoukville, og her tarf madur ekki ad varast rollur a veginum nei tad eru hin ymsu jorturdyr eins og nautgripir, geitur og vatnabuffaloar sem rolta rolega yfir veginn og kippa ser litid upp vid bilflaut. Vid tetta baetist fidurfe eins og haenur med ungaskarann, ymsar tegundir af ondum og gaesir, einnig med unga. Svo er einstaka svin. Eg aetla svo ad slappa adeins af a strondinni, tegar eg fae leid a tvi ta held eg til Siem Riep til ad skoda hid mikla Angkor Wat.

miðvikudagur, maí 02, 2007

Filaferd

Ta er eg komin aftur til Phnom Penh eftir ad hafa verid i nokkra daga uta landi. Eg tok fyrst rutu til Kampong Cham og eyddi tar einni nott. Planid var svo ad taka share taxi eda pick up til Sen Monorom tvi samkvaemt tveggja ara gomlu lonely planet bokinni minni ta var engin ruta sem fer tangad. Og madur turfti tvi ad trodast svona 8 inn i einn bil eda pick up tar sem madur borgar meira fyrir ad sitja inni. En i fyrra byrjadi eitt rutufyrirtaeki ad fara daglega til Sen Monorom svo eg losnadi vid tad aevintyri. Allavega Kampong Cham hjoladi eg adeins um og skodadi hof sem er byggt inni gomlu hofi, soldid spes. Tar er lika bambusbru sem baejarbuar byggja a hverju ari a turrkatimanum til ad komast ut i eina eyju. I Kampong Cham kynntist eg saenska parinu Lindu og Marik, tau voru lika a leid til Sen Monorom. Marik let mig smakka palmavin og termita, sem er palmavins-snakk. Mer fannst hvorugt gott. Daginn eftir var svo looong rutuferd yfir holottan malarveg sem gaf slodanum milli Pez Maya og Tulum ekkert eftir. Vegna stodugs stridsastands sem hefur rikt her i Kambodiu ta er vegakerfid ekki uppa tad besta. Eg kom til Sen Monorom um kvoldid og eg og hollensk stelpa, Marieke, akvadum ad deila herbergi. Vid forum inn a gistiheimilid sem er vid hlidna rutustoppustodinni og skodudum eitt herbergi fyrir 5 dollara. Tad leit nu allt i lagi ut midad vid verd nema hvad tad vantadi klosettsetuna og tad var vatnslaust. Strakurinn fullvissadi okkur um ad hann vaeri ad fara setja vatnspumpuna i gang og ta kaemi vatn. Eg veit ekki afhverju en vid akvadum ad lata slag standa. Naestu tvo daga vorum vid svo med rennandi vatn i svona 10 minutur og rafmagnslaust. A tridja degi eftir loford um rafmagn og vatn ta hugsadi eg med mer ad eg vaeri nu ekki med svo mikinn sparnad ad eg gaeti ekki splaest i herbergi med rennandi vatni og rafmagni. Gekk hinum megin yfir gotuna og vid Marieke fengum hreint og fint herbergi med rennandi vatni og rafmagni fyrir heila sex dollara. Reyndar var finn filingur a hinu gistiheimlinu. Tetta voru tveir strakar sem voru nyburnir ad leigja heimilid og half leiddist ad sitja bara allan daginn. Tegar tad var rafmagn ta sungu teir i karoki og vid spiludum poker a kvoldin.

Sen Monorom er fjallatorp i Mondulkiri heradinu. Tetta er famennasta heradid og tvi mikid af skogi og fossum. Eg slost i for med hop af folki sem hafdi leigt pick up yfir daginn og var planid ad skoda trja fossa. Vid forum fyrst ad skoda Bou Sraa fossinn sem er einn staersti foss her i Kambodiu. Hann var nu frekar tilkomulitill enda ennta turrkatiminn. Eg, Linda og Marieke fengum okkur samt sundsprett og kambodiskir karlmenn drogu upp simana sina og smelltu af okkur mynd. Svo var lagt af stad til naesta fosss en ta var turrkatiminn allt i einu buinn tveimur manudum of snemma og tad for ad rigna. Vid turftum tvi ad trodast atta inni pick upinn. Sem betur fer var helmingurinn Kambodiar (eda Khmerar). Tar sem vegirnir verda mjog halir i rigningu ta urdum vid ad sleppa hinum fossunum og halda heim a leid eftir ad hafa fengid okkur sidbuinn hadegismat. Eg og Marieke vorum samt i afneitun ad regntiminn vaeri hafinn og vildum endilega fara i tveggja daga filaferd. Vid vorum of seinar ad boka ferdina tann daginn og allir filarnir uppteknir. Daginn eftir roltum vid tvi um Sen Monorom og hlupum i skjol tegar skurirnar komu og aftur drogu Khmer karlmennirnir upp simana sina og toku myndir. Vid bokudum svo fil og daginn eftir hofst mikil svadilfor. Vid vorum sottar til Sen Monorom um morguninn og keyrdar a moto eftir sleipum ledjuvegi til Pnong torps tar sem fillinn var. Eg hef nu margsinnis setid a moto her i Asiu en tetta er i fyrsta sinn sem eg var virkilega hraedd um ad detta. Jafnvel i borgunum i gedveikislegri umferdinni ta var eg ekki hraedd tvi tad giltu vissar reglur og allt gekk mjuklega. Eg og Marieke komum til torpsins nafolar og hittum filinn okkar. Vid attum ad sitja asamt farangri i litilli korfu uppa filnum. Karfan var nogu stor til ad ruma heila Khmer fjolskyldu en ekki nogu stor fyrir tvaer vestraenar stelpur sem eru yfir 180 cm a haed. Vid settumst i keng uppi korfu med farangurinn i fanginu og svo hofst ferdin. Eg vil taka tad fram ad filar fara ekki hratt yfir. Manneskja a venjulegum gonguhrada er fljotari i forum. Hopurinn samanstod af mer og Marieke, leidsogumanninum sem taladi bara Pnong og Khmer og tveimur strakum sem eg veit ekki hvernig tengdust leidsogumanninum. Teir gaetu verid synir hans eda braedur. Tad er rosalega erfitt ad sja ut aldur a folki herna. Allavega yngri strakurinn styrdi filnum a medan eldri strakurinn og leidsogumadurinn hentust a eftir ollum teim dyrum sem vid saum med slongvibyssur og kylfur a medan litli strakurinn hropadi leidbeiningar ofan af filnum. Teir nadu ad drepa litla edlu sem teir eldudu ser i hadegismat. Eftir marga klukkutima upp a filnum og i hellidembu part ur leid ta komum vid loks a leidarenda. Tarna var kofinn sem vid attum ad gista i. Kofi er reyndar of finnt ord. Tetta var meira svona millistig milli skylis og kofa. Inni var ein skitug dina sem vid Marieke urdum ad deila. Leidsogumadurinn og strakarnir nadu ad brjotast inn i annan kofa og gistu tar. Tarna var enn einn fossinn sem madur gat synt i en vid vorum blautar og kaldar og ekki i sund studi. Tegar vid komum aftur eftir ad hafa skodad fossinn ta voru strakarnir bunir ad drepa gekko sem teir bordudu i kvoldmat. Tad var nu litid fyrir okkur Marieke ad gera svo vid spiludum adeins og forum svo snemma ad sofa. Eg reyndi lika ad vera adeins god vid filinn og gaf henni banana og mango tar sem eigendurnir voru ekkert vodalega godir vid hana. Daginn eftir voknudum vid snemma og roltum aftur nidur ad fossinum og morgunmaturinn var tilbuinn tegar vid komum til baka. Eflaust afgangurinn af gekkonum. Fillinn var svo latinn bada sig og vid logdum af stad til baka. Karfann virtist hafa hlaupid i rigningunni og eg og Marieke gatum enganvegin komid okkur saemilega fyrir. Teir felagar nadu ad skjota nidur fugl sem teir syndu okkur stoltir og eg og Marieke hrisstum hausinn tegar teir rettu okkur hann. Svo voru teir ordnir treittir a tvi hvad fillinn gekk haegt svo litli strakurinn bra a tad rad ad kveikja i nokkrum laufur og elta filinn med eldinum. Okkur Marieke fannst tetta ekki eins snidug hugmynd. Ad hraeda eitt staersta landdyr jardar med eldi tegar vid erum fartegar. Eg var lika ordin svo aum i ollum likamanum eftir ad sitja i keng i tessari krofu med spitu i bakinu ad mer var skapi naest ad fara nidur af filnum og labba bara. Svo for ad rigna og tad rigndi og rigndi med tilheyrandi trumum og eldingum. Svo slo einni eldingunni nidur rett hja okkur og ta var Marieke alveg nog bodid og mer lika. Vid satum bara nidurringdar med auman rass og bak og bidum eftir tvi ad komast aftur i torpid. En okkur hlakkadi ekki til ad teysast um hala sveitavegina a moto aftur til Sen Monorom. Tegar vid loksins, loksins komum aftur i torpid ta benti leidsogumadurinn okkur a ad hoppa upp a motohjolid hans. Badar tvaer. Tott eg hafi nu sed heilu fjolskyldurnar runtandi um a einu svona hjoli ta leist okkur ekki a ad setjast badar fyrir aftan manninn med farangurinn lika. En tad var ekki annad i bodi. Svo vid trodumst a hjolid og keyrdum i baeinn. Vid komum blautar og kaldar a gistiheimilid okkar sem ad sjalfsogdu var ekki med heitt vatn. Reyndar hef eg ekki komist i almennilega sturtu sidan eg kom til Kambodiu.

Eg kom svo til Phnom Penh adan og aetla halda sudur a morgun til Kampot.

miðvikudagur, apríl 25, 2007

Sigling og hryllingur

Mekong delta

Ta er eg komin til Kambodiu. Er nuna i hofudborginni Phnom Penh og er aldeilis buin ad runta um baeinn og skoda sofn i dag. Til ad komast hingad a audveldan hatt og til ad sja Mekong delta svaedid ta akvad eg ad sla tvaer flugur i einu hoggi og bokadi tur sem for i gegnum Mekong svaedid, yfir landamaerin og til Phnom Penh. Eg sigldi um fljotandi markadina og svo var audvitad turistastopp i nammiverksmidju tar sem eg kynntist dasemdum kokoskaramella. Eg aetla ad flytja inn kokostoggur tegar eg kem aftur til Islands. Tvi midur keypti eg bara einn pakka og var svo a leid ur landi en vonandi er til svipad gummuladi her i Kambodiu. Annan daginn var farid og skodadur annar fljotandi markadur og svo silgt um svaedid til ad skoda husin og svo var turistastopp i avaxtagardi. A programinu stod ad smakkadir yrdu framandi avextir sem eg var alveg handviss ad yrdu bananar og ananas en ekki hinu raunverulegu framandi avextir. Og eg hafdi rett fyrir mer. Eftir stutt labb a milli avaxtatrjaa ta settumst vid vid bord tar sem a voru nokkrir ananasbitar og einn banani a mann. Mjog framandi. Svo var farid i hrisgrjonaverksmidju tar sem hrisgrjon eru unnin og audvitad framleitt hrisgrjonavin. A moti okkur tok ansi katur madur sem sulladi hrisgrjonavini i staup og retti hverjum og einum og skaladi yfirleitt vid vidkomandi lika. Tad er nu eins gott ad islenska vinnueftirlitid komist ekki tarna inn. Mennirnir baru 40 kg hrisgrjonapokana og stundum tvo eins og ekkert vaeri.
I ferdinni var donsk stelpa sem einnig var a leid til Kambodiu, eg vildi ekki vera donaleg og spurja hvort hun heti Mette. Svo spurdi eg hvad hun heti. Mette, var svarid. Vid vorum taer einu i hopnum sem vorum i triggja daga ferd til Kambodiu ( i Vietnam eru hopar sameinadir og sundrad eftir behag svo madur er sjaldnast med sama folkinu i meira en einn dag). Vid skildum tvi vid hopinn eftir hrisgrjonaheimsoknina og forum upp i adra rutu og runtudum til Cham doc sem er vid Kambodisku landamaerin. Eg deildi herbergi med Shinji, japonskum strak, og vid slogumst i for med tveimur hollenskum strakum sem voru ad fara fa ser ad borda. Hollensku strakarnir bordudu bara graenmetisfaedi her i Vietnam tvi ad kjotid vaeri yfirleitt af oraedum uppruna. Vid forum svo a bia hoi (tar sem seldur er odyr lokal bjor) og tar var ymislegt snarl a bodstolnum eins og steiktur snakur i kokosvatni og djupsteikt ledurblaka med fiskisosugljaa. Daginn eftir var vaknad snemma og vid forum ad skoda fljotandi torp sem er vid Cham doc, folkid tar er snidugt og er med fiskeldi undir husunum sinum og selur vist fiskinn sinn ut um allan heim. Ef eg vissi hvadan tessi fiskur kaemi ta myndi eg ekki hafa list. Tad var svo farid a eyju tar sem Cham folk byr. Tad byggir hus sin a stultum tvi a hverju ari flaedir Mekong ain yfir eyjuna. Manni baudst ad klaeda sig eins og Cham og lata taka mynd, en Cham folkid eru muslimar og ganga um med slaedur og i sarongum. Eg let ekki taka mynd. Eftir tessa heimsokn ta var okkur sem vorum a leid til Kambodiu trodid i einn bat og vid tok long sigling til landamaeranna. Svo var farid i gegnum landamaerin og vid tok onnur long sigling og svo long bilferd til Phnom Penh. Vid lentum i umferdateppu og satum fost i 40 minutur. Eg kom svo til Phnom Penh seinnipartinn i gaer. Eg og Shinji, akvadum ad fa okkur herbergi saman til ad spara.

I dag fengum vid tuk tuk bilstjora til ad runta med okkur a milli markverdustu stadinna her i Phnom Penh. (Tuk tuk er motorhjol sem dregur a eftir ser vagn). Vid byrjudum a tvi ad skoda drapsvellina (the killing fields) tar sem Raudu Khmerarnir foru med folk og toku tad af lifi og hentu tvi svo i fjoldagrafir. Buid er ad grafa upp yfir hundrad fjoldagrafir og leifar af taeplega 9000 manns hafa fundist. 43 grafir standa ohreifdar. Tegar madur kemur inn a svaedid ta blasir vid manni minnisvardi sem er stor turn med 8000 hauskupum radad eftir kyni og aldri. Her hefur svaedid ekki verid steriliserad af ollu sem minnir a atburdina eins og oft er a stodum tar sem skelfilegir atburdir hafa gerst. Tegar madur gengur um svaedid ta ser madur halfgrafnar fataleifar og mannabein standa upp ur jordinni. Kambodiufolk er sko ekki ad draga ur hryllingnum. Naesta stopp var S-21 fangelsid, skoli sem breytt var i fangelsi af Pol Pot og felogum. A teim fjorum arum sem Raudu Khmerarnir voru vid stjorn ta voru yfir 10 tusund manns og 2000 born send i tetta fangelsi. Aftur er ekkert verid ad draga ur hryllingnum og allar taer myndir sem fundust af folkinu eru til synis. Menn, konur og born. 14 lik fundust i pyntingarherbergjunum og eru jarnrumin ennta med tilheyrandi pintingartolum og svo mynd af likinu upp a vegg. Tad sem mer fannst merkilegt er ad fangelsinu var breytt i safn 1980, adeins ari eftir ad Raudu Khmerunum var komid fra voldum.
Eftir allan tennan hrylling ta var agaet ad fara i tjodmynjasafnid og skoda gamlar styttur fra Angkor timabilinu. Byggingin er einnig afskaplega falleg og fallegur og fridsaell gardur i midjunni. Svo forum vid ad skoda hollina og silfur hofid. Fyrir utan rakumst vid a breskt par sem hafdi verid i batnum til Kambodiu. Konan hafdi slysast til ad vera i hlyrabol og of stuttum stuttbuxum i kaefandi hitanum og turfti ad leigja ser risastoran stuttermabol og buxur adur en henni var hleypt innfyrir. Eg var somasamlega klaedd i stuttermabol og stuttbuxum sem nadu nidur ad hnjam. Madur var rukkadur um heila tvo dollara til ad taka myndir sem eg borgadi audvitad ekki en laumadist svo til ad smella af einni og einni mynd. Golfid i silfur hofinu er ur 5000 silfurflisum, tar er einnig gull budda sem vegur 90 kg og er skreyttur yfir 2000 demontum. Til synis eru allskonar gull og silfurmunir skreyttir gimsteinum. Madur faer samt ekki ad sja hofid i allri sinni dyrd tvi allt golfid er teppalagt fyrir utan einn litinn blett sem synir silfurflisarnar undir mottunum. Inni i hofinu voru lika tessar finu og storu viftur tannig ad turistar a barmi hitasjokks stoppudu extra lengi vid syningarkassana sem voru hlidina viftu.
Shinji vildi svo fara ad skoda Wat Phnom sem er uppa einu haedinni her i Phnom Penh tvi einhver hafdi sagt honum ad tar vaeri fill. Tuk tuk stjorinn skildi ekkert i honum ad vilja fara tangad. Baedi fannst honum vid hafa runtad nog fyrir uppgefid verd og svo sagdi hann ad tad vaeri ekkert merkilegt tarna. En Shinji gaf sig ekki, hann vildi sja fil. Svo vid runtudum af stad og maettum fil a leidinni en tad var ekki retti fillin svo vid forum ad hofinu. Tar var enginn fill, bara apar. "Tad er ekkert her" sagdi Shinji eftir ad hafa gengid hringinn i kringum hofid. Mer fundust samt aparnir merkilegir og neonljosin svo voru inn i hofinu i kringum buddastyttuna.

A morgun held eg til austur Kambodiu og er fyrsta stopp Kompong cham.

Eg nadi einnig ad setja inn nokkrar myndir fra Mekong delta a medan eg bloggadi.

laugardagur, apríl 21, 2007

Kambodia her kem eg!

Eg er stodd i Saigon, kom i gaerkvold. Eins og venjulega ta voru menn staddir vid rutuna spurjandi hvort mann vantadi herbergi. Einn baud mer upp a herbergi fyrir 6 dollara svo eg elti hann til ad sja hvad vaeri i bodi fyrir 6 dollara her i Saigon. Hann labbadi adeins nidur gotuna og inna hargreydslustofu og benti mer ad elta. Ja baka til a hargreidslustofunni voru trju herbergi. Konurnar komu og syndu mer herbergid sem var laust og tad var svona allt i lagi. Ekki jafn fint og 6 dollara herbergid sem eg fekk i Hue. En mer fannst svo fyndid ad gista a hargreidslustofu ad eg akvad ad taka herbergid. Svo var eg ad koma mer fyrir og finn ta eitthvad a loppinni. Tad var moskitofluga. Eg nadi ad drepa hana og litadist um eftir fleirum en sa engar. Svo for eg a klosettid og tar sem eg sat i rolegheitum ta komu svona 10 moskitoflugur og settust a leggina mina. Mer for nu ekki ad litast a blikuna. Leist ekki a ad deila herbergi med svona moskitofjolda. Jafnvel tott taer vaeru ekki jafn storar og ogvekjandi og Pez Maya flugurnar. Svo sturtadi eg nidur og klosettid for ad leka. Baedi ur kassanum og ur skalinn, ta sagdi eg stopp. Hingad og ekki lengra. For nidur og sagdist aetla fara eitthvad annad i moskitofritt herbergi med vatnsheldu klosetti.

I dag langadi mig ad fara a eitthvad rolegt graent svaedi. Fjarri borgarnid. Eg akvad tvi ad fara i grasagardinn her i Saigon. Hafdi hugsad mer ad eyda eftirmiddeginum vid blomailm og thyt i laufi ad lesa i ljosritudu Kambodiu lonely planet bokinni sem eg keypti. Tegar eg kom i gardinn ta attadi eg mig a tvi ad tetta var eiginlega bara dyragardur. Og eins og tad vaeri ekki nogu slaemt ta voru hatalarar ut um allan gard sem ur glumdi klassisk lyftutonlist af verstu gerd og tad sem verra var ta voru bara svona 5 log sem voru spilud aftur og aftur. Tar med hafdi hugmynd min um blomailm og laufathyt gufad upp i Saigon hitanum. En tar sem eg var komin tarna ta gekk eg um og skodadi greyangans dyr i allt of litlum hybylum. Orangutananum virtist leidast alveg serstaklega og filarnir ruggudu ser stanslaust til hlidanna. Enn og aftur fekk eg ad upplifa vietnomsk almennilegheit tegar kona kom upp ad mer og trod litlum hnetupokum i lofana a mer og sagdi mer ad henda hnetunum til apanna. Eg vildi ekki kaupa neinar hnetur og reyndi ad skila hnetunum. Eg fekk bara fleiri hentupoka i stadinn og romsu med tetta margir pokar fyrir tetta morg dong. Og eg akvedin ad eg vildi ekki neinar helvitis hnetur til ad henda i apagreyin. Konan strunsadi ta i burtu i fussi.

Eg er buin ad boka tur sem fer um Mekong delta og svo til Kambodiu. Eftir trja daga verd eg tvi komin tangad. Eg fann mer saemilegan stad i dyragardinum og las i Kambodiubokinni a medan eg reyndi ad utiloka tonlistina. Mer list bara mjog vel a Kambodiu, hins vegar er tad land ekki jafn netvaent og Vietnam svo eg verd ekki i alveg jafn miklu sambandi vid umheiminn og eg hef verid her. Eg hlakka hins vegar oskop til ad komast fra Vietnam og hef verid i ovenju godu skapi i dag.

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Stelitjofar

Jaeja ta er eg buin ad vera i Vietnam i um tvaer vikur og bara alveg komin med nog skal eg segja ykkur. Tad hlytur margt ad hafa breyst a tessum, hvad? tveim arum sem Jenny og Hlynur voru her tvi teim fannst Vietnam alveg frabaert en eg hinsvegar bara get ekki bedid eftir tvi ad komast ur tessu landi.

Allavega eg skal segja fra tvi sem a daga mina hefur drifid fra tvi eg skrifadi sidast. Tegar eg stod upp fra tolvunni eftir ad hafa bloggad sidast ta rakst eg a ira sem var nykominn fra Indlandi, vid spjolludum adeins en hann var ad fara i ferd til Halong bay en eg ad fara til Tam coc og svo til Hue. Eftir spjallid for eg ad taka til dot til ad hafa med i dagsferdina og uppgotvadi mer til mikils hryllings ad tad var buid ad stela baedi myndavelinni og ipodinum. Tar med voru farnar allar myndirnar minar fra Mexiko, tonlistin min og myndavelin med myndum fra Halong bay og Sapa. Mig grunar strakinn sem svaf i koju fyrir nedan mig i lestinni og var snoggur ut tegar hun stoppadi. Eg eyddi deginum i ad upphugsa ymsar limlestingar og ohopp fyrir strakinn a medan eg duggadi um fridsaela hrisgrjonaakra i Tam coc. Annars var Tam coc mjog fallegt, landslagid er eins og Halong bay a landi og madur siglir i arabat tar sem konurnar ymist roa med hondunum eda fotunum sem er svolitid spes. Med i for var leidsogumadur sem atti ad vera enskumaelandi en eg skildi ekki ord af tvi sem hann sagdi. Eg var audvitad myndavelalaus og hef tvi engar myndir en teir sem vilja geta googlad Tam coc.

Um kvoldid tok eg naeturlestina til Hue og var komin tangad um midjan dag. Tegar eg kom ut af lestarstodinni ta maetti mer hopur af monnum veifandi hotelbaeklingum og bendandi mer ad fylgja ser ad mini rutunum sinum. Eg valdi einn sem lofadi mer hotelherbergi a sex dollara. Eg var i Hue i einn dag og skodadi tar the imperial city og aftur engar myndir. En tad var mun hlyrra en i Hanoi sem var breyting til batnadar. Einnig var folkid adeins vinalegra og keyrdi bara eins og brjalaedingar en ekki eins og gedsjuklingar.

Daginn eftir tok eg rutu til Hoi An sem er gamall hafnarbaer. Tetta er stadurinn i Vietnam ef madur vill lata sauma a sig fot og kaupa sko. Rosalega voru finir skor tarna. Eg let sauma a mig einar stuttbuxur bara svona til ad vera med. Hoi An er oskop fallegur og kruttlegur baer og gaman ad labba um hann. Eg for i dagsferd til My Son sem eru gamlar rustir i skoginum fyrir utan Hoi An. Nu var eg loksins komin i almennilegan hita og sol plus loftraka tannig ad tad lak af mer svitinn. Rustirnar voru fallegar, ekki jafn mikilfenglegar og taer sem eg hef verid ad skoda i Mexiko en odruvisi. Taer eru mikid skemmdar baedi ut af vedrun en helst eftir ad hafa verid sprengdar upp i Vietnam stridinu. Eg skildi sma ad tvi sem leidsogumadurinn sagdi en ekki mikid. Ferdin atti svo ad enda med batsferd til Hoi An og hadegismat i batnum.
Okkur sem hofdum bokad batsferd var smalad nidur ad a og tar tok a moti okkur litill tredallur. Vid settumst uppi og leidsogumadurinn gekk a milli okkar og afhenti litinn fraudplastbakka sem i voru kold hrisgrjon og fjorir bitar af vorrullu. Sidan var litill banani i eftirrett. Tetta var hadegismaturinn sem var innifalinn. Eg og itolsk stelpa sem sat vid hlidna mer gatum ekki annad en hlegid.
Annars var batsferdin adeins til ad dugga med okkur a treskurdarverkstaedi til ad reyna selja okkur fataekum bakpokaferdalongum risa Buddastyttur og ruggustola. Allar ferdir eru med einhverskonar mynjagripastoppi.

Tegar eg kom til Hoi An ta voru oll odyr hotel uppbokud en tad nadist ad redda mer einu rumi uppi a haalofti a einu hotelinu. Tad var buid ad troda tremur rumum inni litid herbergi og madur gat varla gengid a milli teirra. Naestu nott fekk eg svo fint herbergi.

Tad er ekki haegt ad neita tvi ad tad er mjog audvelt ad ferdast um Vietnam en einhvern vegin lidur mer eins og gullgaes sem verid er ad skera upp til ad taka oll eggin ur henni. Folkid er vinalegt (allavega i sudrinu) en bara ef tad byst vid ad fa peninga og folk vill fa peninga fyrir allt. Her spjallar enginn vid tig nema til ad reyna selja ter eitthvad. Ef einhver hjalpar ter hid minnsta ta byst hann vid borgun. Stundum er manni hjalpad an tess ad vilja tad eda turfa adstod og svo er heimtud borgun. "You pay now, money" hef eg fengid ad heyra oftar en einu sinni. Og madur byst alveg vid okrinu en oheydarleikinn fer alveg med mig.

I Hoi An rakst eg aftur a irann sem eg hafdi hitt a hotelinu minu i Hanoi. Hann var ta buinn ad fa sig fullsaddan af Vietnam eftir adeins viku og sagdist bara stefna sudur og til Kambodiu eins fljott og hann gaeti. Einhvern vegin hafdi mer ekki dottid tad i hug. Ad bara gefa skit i Vietnam og faera mig yfir i naesta land. "Getur madur gert tad?" hugsadi eg med mer. Tad var alveg fast i mer ad vera fullan manud her i Vietnam. Eg akvad samt ad gefa Vietnam sma sens og reyna sja hid sjarmerandi land sem Jenny hafdi talad um og planadi ad skoda midhalendid eftir ad hafa verid i Nha Trang.

Eg tok lestina til Nha Trang sem er helsti strandarbaer teirra Vietnama og hingad kemur folk til ad fara i solbad og kafa. Med mer i klefa var afskaplega astfangid danskt par og strakurinn bara gat ekki haett ad horfa og klappa kaerustunni sinni. Hann horfdi m.a.s. a hana brosandi a medan hun svaf. Allavega eg kom til Nha Trang um kvoldid og daginn eftir, eda i gaer, ta leigdi eg mer hjol og haetti mer ut i hina gedveikislegu vietnomsku umferd tar sem gilda engar, eda mjog oljosar umferdareglur. Eg hjoladi adeins medfram strondinni sem var agaett og svo i gegnum baeinn til ad skoda Cham Ponagar musterid sem er upp a haed med fallegu utsyni yfir batahofnina. Svo akvad eg ad slappa adeins af a strondinni, en tad var ekki haegt. Eg var ekki fyrr loggst en solufolkid tok ad streyma ad. Og tad tekur "no thank you" sem bod til ad tilla ser nidur og ota ad ter mentos og kartofluflogum "you buy later?" og madur endurtekur i sifellu "no, no, no". Eftir ad enn ein solukonan var farin sa eg adra nalgast og flytti mer ad standa upp og hljop i sjoinn. Konan kalladi a eftir mer "madam! madam!" eins og eg myndi snua vid til ad kaupa af henni mentos og kartofluflogur og kannski sigarettur lika. Eg var svo nylogst eftir sjobadid tegar strakur med bokakassa kemur labbandi "books?" spyr hann og eg svara audvitad neitandi. Hann tekur tad sem bod um ad tilla ser og tar sem hann er ad lata fra ser kassann til ad syna mer bokaurvalid ta hvaesi eg a hann "what is wrong with you people? why can't you take no for an answer!?" Strakgreyid hrokkladist i burtu med baekurnar sinar og eg brosti afsakandi og fekk samviskubit.

I morgun var eg enn a badum attum hvort eg aetti ad halda bara sudur a leid, alltaf tegar eg fer i suduratt ta fae eg a tilfinninguna ad eg se a rettri leid, eda skoda meira af Vietnam og halda til Dalat og skoda tadan midhalendid. Eg var nu eiginlega a tvi ad fara bara til Dalat en akvad ad sja til. Eg aetladi ad skoda Long Son hofid og hugsadi med mer ad kannski fengi eg einhverja uppljomun tar. Long Son hofid er fraegast fyrir ad hafa 9 m haa hvita buddastyttu upp a haed og svo er 14 m long stytta af sofandi budda. Eg var ekki fyrr stigin inn fyrir hofshlidid en til min kemur strakur sem byrjar ad fylgja mer um hofid og spjalla vid mig. Hann bjo ta tarna og var munadarleysingi en munkarnir hofdu tekid hann ad ser. Eg beid audvitad eftir tvi ad hann faeri ad reyna selja mer eitthvad og audvitad leid ekki a longu fyrr en hann dro fram postkort sem hann vildi selja mer a 50 tus dong. Mer langadi ekkert i nein postkort og hvad ta a 50 tus dong. Eg sprudi hvort eg maetti ekki bara gefa honum sma pening. Hann spiladi ta ut munadarleysingjaspilinu sem erfitt er ad trompa. Ta gekk fram hja tjodverji sem kalladi til min "just say no and walk away!" eg tok hann a ordinu og strakurinn kalladi a eftir mer "give me 20 thousand dong!". Eg gekk upp hin 150 trep upp ad hvitu styttunni en stoppadi til ad skoda sofandi buddann. Vid fyrstu syn leit styttan ut fyrir ad vera hoggin i stein en vid nanari skodun tad var hun bara ur hudadri steypu. Eg bjost jafnvel vid tvi ad heyra holhljod tegar eg bankadi i styttuna. Hun var ekki alveg jafn tilkomumikil eftir ta uppgotvun. Eg helt svo afram upp a topp og turfti ad klofa yfir tvo betlara a leidinni upp ad styttunni hvitu. Tegar eg horfdi a styttuna, hvita og fina i solskininu ta datt mer helst i hug ad hun vaeri gerd ur trefjaplasti. Tegar eg var a leidinni nidur ta benti gamall madur mer ad koma med ser (hann reyndist vera 55 ara en leit ut fyrir ad vera 70). Hann benti mer i gegnum hlid og syndi mer annad hof og minnisvarda sem voru byggd til minningar um ta muna og taer nunnur sem fornudu lifi sinu til ad vekja athygli umheimsins a ognarstjorn Deim. Tegar vid komum ut fyrir hlidid ta vildi hann audvitad fa pening. Eg retti honum 10 tus dong og hann setti upp fylusvip, eg let hann fa 5000 i vidbot og hann vildi fa meira. Eg neitadi og hann oskadi mer lukku. A leidinni til baka fra hofinu ta hugsadi eg med mer ad eg vaeri alveg komin med nog af tessu landi og kom vid a ferdaskrifstofu og keypti mer rutumida til Saigon a morgun.

Og ja eg er buin ad kaupa nyja myndavel og setti inn nokkrar myndir fra tvi i dag

Long Son hofid

og svo get eg ekki skodad bloggid mitt tvi Vietnomsk stjornvold eru med ritskodun ad netinu svo madur getur ekki lesid bloggsidur. Eg se ad eg er med 5 komment og er mjog forvitin hvad stendur i teim...

miðvikudagur, apríl 11, 2007

Thoka og kuldi i Vietnam

Eg er buin ad vera i taepa viku i Vietnam og hef bara sjaldan verid jafn kalt. Sidasta midvikudag lagdi eg i ferd yfir halfan hnottin og lenti i Hanoi a fostudaginn. Fra L.A. til Hong Kong sat eg hlidina kristnum vaxtarraektarkappa sem var a leid til Filipseyja til ad breida ut gledibodskapinn. Herna var kominn madur sem eg atti hreinlega ekkert sameiginlegt med. Eg vildi nu sidur spjalla um truarleg malefni og var tvi frekar ad forvitnast um vaxtarraektina. Hann sagdi ad tad vaeri frekar erfitt ad keppa i keppnum tar sem flestir hafa verid ad taka stera og vaeru tvi risastorir. En keppnin sem hann var ad undirbua sig fyrir leifdi ekkert slikt. Hann hafdi m.a.s. heyrt um Jon Pal en vissi ekki ad hann vaeri dainn. Eg sagdi honum ad Jon Pall hafdi fengid hjartaafall rumlega tritugur "aha, sterar" sagdi hann kinkandi kolli. En audvitad kom ad tvi ad hann for ad spyrja um trunna a Islandi og eg vard ad jata fyrir honum ad eg bara tridi ekki a gud. Hann vard hissa en reyndi ekki ad lata mig sja ljosid, hafdi meiri ahyggjur af tvi ad eg myndi brenna i helviti. Ad sjalfsogdu trudi hann ekki trounarkenningunni og tegar eg bad hann um utskiringar a hinu og tessu eins og steingervingum og risaedlum ta svaradi vaxtarraektargaejinn ad hann vissi tad ekki en gud myndi gefa honum svor vid ollu tegar hann daeji. Og hananu.

Allavega eg lenti i Hanoi a fostudaginn og hef ekki sed til solar sidan, og tad er kalt. Eg for i tveggja daga siglingu um Halong bay og rett grillti i eyjarnar i gegnum tokuslaeduna. Vid vorum fjortan a batnum og oll nykomin fra hlyrri og solrikari stodum. Svo vid satum iklaedd ollum teim fotum sem vid hofdum komid med. A batnum voru fjorir svijar og vid vorum oll svo miklar skandinaviskar stereotypur ad mer fannst tad half vandraedalegt. Oll havaxin, ljoshaerd og blaeygd. Vid silgdum um fjordinn og forum i storan dropasteinshelli. A einum stadnum benti leidsogumadurinn ut i loftid og sagdi med miklum hreim "power of man". Vid vorum ekki fyrst ad skilja hann og svo reyndi eg ad lita hvert hann vaeri ad benda og sa ta blasa vid fyrir framan mig tippalaga stein sem var upplystur a mjog smekklegan hatt med bleikum kastara. "Power of man, ja" sagdi leidsogumadurinn og kinkadi kolli.

Vid morgunverdarbordid hofst ansi skemmtilegt rifrildi milli eins bretans og ahafnarinnar tegar hann vildi fa mjolk i teid sitt. Tad var haegt ad fa kaffi med mjolk en ekki te med mjolk. Tvilik fasinna, ad setja mjolk i teid sitt! Bretinn sagdi ytrekad "milk tea" og vietnaminn sagdi "no milk tea, milk coffee" og bretinn fekk til skiptis mjolkurlaust te eda kaffi med mjolk. Eg og saensku strakarnir satum hinum megin vid bordid og flissudum. Eftir svona 15 minutur af "milk, tea" "no milk tea, milk coffee, no milk" ta var leidsogumadurinn bedinn um ad tyda og eftir svona 5 minutur af tali ta birtist einn af ahafnarmedlium med litid bref sem i var instant kaffi og mjolk. Tad var semsagt ekki til nein mjolk. Bretanum fellust hendur og hann hvadi afhverju teir hefdu ekki bara getad synt honum tetta fyrr. Ekki batnadi tad tegar kom i ljos ad ahofnin hafdi baett vid einum bjor a reikninginn hans og lagt svo allt vitlaust saman. Ta fyrst fengum vid skemmtun og goda frasa eins og "I have an I.Q. of a 140 and I know that 8x15 is not 187!". Erik sagdi ad tetta hafi verid hapunktur ferdarinnar hja honum.

Eftir Halong bay turinn ta var eg buin ad boka ferd til Sapa og atti ad taka naeturlestina ta um kvoldid. Seinnipartinn kom eg aftur til Hanoi og gat bara ekki hugsad mer ad vera tar lengur. Eg er alveg komin med nog af skitugum borgum, tannig ad eg bokadi naeturlest til Hue daginn sem eg kaemi fra Sapa og til ad eg tyrfti ekki ad eyda deginum i Hanoi ta bokadi eg lika dagsferd til Tam coc. Eg var sem sagt ad koma fra Sapa og sit og bid eftir tvi ad starfsfolkid a hotelinu minu vakni svo eg geti fengid morgunmat og farid i ferdina mina.
Tegar madur bokar ferdir her i Vietnam ta tarf madur ekkert ad hugsa sjalfur og i raun faer madur ekki ad hugsa sjalfur. Tegar tad var kominn timi til ad eg taeki lestina til Sapa ta benti einn af starfsmonnum hotelsins mer ad koma med ser. Tok bakpokann minn og ytti mer inn i leigubil. Svo keyrdum vid a lestarstodina, hann skipadi mer ad borga leigubilstjoranum "too dolla" og tok risa bakpokann minn og skipadi mer ad elta sig a lestarstodina. Svo stodum vid i bidsalnum, hann med bakpokann minn og eg vandraedaleg yfir tvi ad lata einhvern strakling burdast med farangurinn minn. Svo tegar tad var farid ad hleypa i lestina ta skipadi hann mer ad fylgja ser, syndi midann rettum adilum, fann retta vagninn, retta klefann, benti svo a rum "you sleep here, good bye" svo henti hann bakpokanum minum a rumid og for. Svo skemmtilega vildi til ad vagninn var fullur af astrolskum unglingum i skolaferd og eg deildi klefa med tremur taningsstelpum. Tegar eg kom til Lao toc (eda eitthvad svoleidis) ta beid tar madur med nafn mitt a lista, ytti mer upp i rutu sem var a leid til Sapa. Eg sat svo i rutunni tar til rutubilstjorinn sagdi mer ad fara ut "you go here" og fylgdi straumnum inna hotel. Tar var mer sagt ad fa mer morgunmat og bida eftir leidsogumanninum.
Sapa er fjallabaer og fraegastur fyrir fallegt utsyni yfir fjollin og svo litlu torpinn allt i kring en ibuarnir eru af mismunandi aettbalkum. Ferdamenn koma hingad og labba um fjollin a milli torpanna og skoda ibuana sem lifa vid mjog frumstaedar adstaedur og raekta hrisgrjon. Fjollin eru oll med tesssum tipisku trepum tar sem hrisgrjonin eru raektud. Eg fekk ekki ad sja hid fallega utsyni yfir fjollin tvi tad var svarta toka og kuldi i Sapa. Um morguninn gekk eg asamt astralskri konu med einum leidsogumanninum, sem var reyndar 17 ara stelpa, i nalaegasta torpid Cat Cat. Vid nadum ad komast nidur ur skyjunum og ta fyrst sa madur hversu fallegt er tarna. Vid fengum ad skoda eitt husid, fletin sem folkid sefur i. "trir i rumi, ekki bara einn" sagdi stelpan. Fyrir utan husin sin selja konurnar handverk sem taer hafa saumad. Eg keypti tvo pudaver sem mer fannst mjog falleg og einhvern vegin fannst mer eg turfa ad kaupa eitthvad fyrst ad konurnar hofdu leift okkur ad skoda husid. Seinnipartinn hafdi madur frian til ad skoda Sapa en tad var svo mikil toka ad bratt sa eg varla milli husa. Tad eina sem eg hafdi upp ur tessari skodunarferd minni var ad einn fataeklingurinn nadi ad pranga inn a mig "silfur" armbondum sem hann hafdi keypt fyrir skit og kanil i Kina (Sapa er rett hja Kinversku landamaerunum). Eg er allt of veikgedja.

Um kvoldid lagdist eg skjalfandi upp i rum med svefnpokann minn og svo teppi ofana. Ja eg er mjog glod ad hafa tekid med mer svefnpoka, hann hefur oft komid i godar tarfir. Naesta dag, sem sagt i gaer, ta for eg med odrum leidsogumanni, astrolsku konunni og manninum hennar asamt einum tjodverja og amerikana og vid gengum nidur i dalinn til ad skoda torpin tar. Strax i upphafi slogust i for med okkur konur og stelpur fra torpunum sem vid vorum a leid til. Og allar spurdu taer somu spurninganna "what's your name?" "where are you flom" "how old are you" vid tessari spurningu ta var svarid alltaf "ahh very young" "you have husband? how many babies?" taer voru alveg sjokkeradar yfir bondaleysi minu. Tarna var nu ein 16 ara med fjarga manada gamalt barn sitt a bakinu, gift og allt saman og eg 28 ara bonda- og barnslaus. Svo studdu taer okkur klaufalegu turistana nidur sleipar ledjubrekkurnar, "you buy flom me?" Eg gat ekki annad en keypt tvo pudaver fra tveimur vinkonum minum sem spjolludu hvad mest vid mig og half baru mig nidur ledjubakkana. Verst ad mer fannst tau ekkert spes og hefdi aldrei keypt tau annars. Tannig ad nuna sit eg uppi med armbond og pudaver sem mig langar helst til ad gefa naesta fataeklingi svo hann geti selt tad aftur naesta turista.

Eg var vinsaelust af ollum turistunum og vid hvert taekifaeri ta struku konurnar og stelpurnar harid a mer "very beautiful". Meira ad segja stelpan sem var leidsogumadurinn minn let freistast tegar eg settist hlidina henni. Ja eg stend svolitid utur herna. Get ekki sagt ad eg falli inni mannhafid. Fyrsta daginn minn i Hanoi ta for eg i gongutur ad vatninu sem er i borginni. I vatninu er eyja sem a er amm.. musteri? allavega temple :) kann ekki islensku lengur. Eg stod a brunni sem liggur ut i eyjunna tegar tvaer stelpur pikka i mig og veifa fyrir framan mig myndavel. Eg helt ad taer vildu ad eg taeki mynd af teim a brunni og kinnkadi brosandi kolli. En nei tad var ekki bruin eda musterid sem taer hofdu ahuga a, tad var eg. Svo onnur stillti ser upp vid hlidina mer a medan hin tok mynd og svo skiptu taer.

fimmtudagur, mars 29, 2007

Palenque og magakveisa

Vid mokurnar erum nu staddar i Oaxaca. Hjordis fekk magakveisu og er buin ad sitja a klosettinu i tvo daga. Tad var ekki gott tvi vid turftum ad fara i 12 tima rutuferd til ad komast hingad. En ja, vid hittum hitt folkid i Palenque og i stadin fyrir ad vera i sjalfum baenum ta gistum vid a stad sem kallast el Panchan. Einn af fyrstu fornleifafraedingunum sem rannsokudu Palenque rustirnar keypti ser land i frumskoginum og kalladi tad el Panchan (himnariki a jord eda eitthvad svoleidis), hann skipti svona landinu upp a milli barnanna sinna og hver og eitt rak gistingu fyrir turista i svokolludum capañas, sem eru bara svona kofar. Tetta er sem sagt i frumskoginum og mikid af hippum og folki med heimatilbuin hljodfaeri og dredda nidra rass. Vid komum snemma um morguninn og hofdum verid i rutu alla nottina og vildum bara fara ad sofa. Eini cabañan sem var laus fyrir okkur var svona einu skrefi fyrir ofan kofann minn i Pez Maya svo eg var alveg satt en Hjordis var med einhverja prinsessustaela og fannst rumid of hart og of mikil laeti i laufum og greinum sem fellu a takid. Svo eg tali nu ekki um allan fuglasonginn og kollin i oskuropunum. Vid fengum okkur sma lur og svo var planid ad fara skoda rustirnar. A leid okkar tangad hittum vid Rob, Beth og Legarè og tad voru nu fagnadarfundir. Tau sloust i for med okkur og vid eyddum siddeginu i Palenque. Eg held ad Palenque rustirnar seu taer flottustu sem eg hef sed hingad til. Um kvoldid var hamingju stund a barnum til 10 sem vid nyttum okkur til hins ytrasta... Daginn eftir forum eg og Hjordis ad skoda fossa og votn (Mixol Há, Agua clara og Agua azul). Tegar vid komum aftur beid okkur midi fra hinum tar sem tau utskyrdu ad tau hefdu allt i einu attad sig a tvi ad tau yrdu ad fara til San Cristobal med det samme ef tau aetludu ad komast yfir landamaerin til Guatemala. Eg fekk tvi ekki ad kvedja mina elsku Beth og yndid mitt hann Negrito (eg kalla Rob tad, einkahumor). Eg for naestum tvi ad grata og var eiginlega frekar leidinlegur felagskapur tad kvold.
Morguninn eftir vaknadi Hjordis med magakveisu en vid vorum bunar ad kaupa okkur mida til San Cristobal svo ad vid kaemumst til Oaxaca. Hjordis vard tvi ad harka af ser i 5 tima rutuferd sem var ekkert nema endalausar beyjur um fjollin. Vid komum um hadegid til San Cristobal og fundum rum sem Hjordis gat lagt sig i og hlaupid reglulega a klosettid. Eg rolti ein um San Cristobal og leiddist afskaplega enda hafdi eg ekki verid svona lengi ein i rumar 10 vikur. Eg sat i minu mesta sakleysi a adal torginu tegar ein af fataeku indjanakonunum med ungabarn a bakinu gekk til min med einhverja vefnadavoru og baud mer. Eg aftakkadi pent en vid hvert nei ta laekkadi hun verdid meira og meira og for ur 220 pesoum nidur i 120 og svo syndi hun mer toma budduna sina og halftoman pela med mjolk i og gratbad mig um ad kaupa af ser tvi hun aetti engan pening og vaeri svo svong og naestum tvi buin med mjolkina fyrir ungabarnid sitt. Eg gat ekki annad en dregid upp budduna og keypt af henni tessa slaedu/duk/teppi sem eg hef ekki hugmynd um til hvers er.

Um kvoldid for eg og sotti Hjordisi og vid splaestum i leigubil ut a rutustod tvi Hjordis gat eiginlega ekki gengid med godu moti. Vid forum upp i rutu og fottudum ad vid hofdum ovart keypt mida i luxusrutuna. Og hvilikur munur, langt a milli saeta, saetin staerri og mykri og haegt ad halla teim vel aftur og hitinn er ekki vid frostmark (mexikanskir rutubilstjorar eru hrifnir af lofkaelingu). Tetta er eina leidin til ad haegt se ad sitja i 12 tima i rutu. Eg tok med mer svefnpokann og breiddi hann yfir mig. Samkvaemt Hjordisi ta sofnadi eg fljott og hraut.

Eg fjalla meira um Oaxaca seinna og kannski nae eg ad setja inn einhverjar myndir.