undur og stórmerki ég var að tjékka á hotmailinu mínu og það var 1 póstur í junk mailinu 1! og ég er með sýjuna stillta á hæsta (fæ aðeins í innboxið frá fólki sem er á contactlistanum)
Annars var ég að fatta að ég fæ bara brandara senda frá tveimur manneskjum þ.e. Helgu frænku og svo Nönnu (reyndar fæ ég einn og einn sendann frá mömmu) Allir aðrir virðast vera komnir á sama stig og ég, þ.e. lesa brandarann hlæja og henda honum svo, nema hann sé sértaklega góður þá sendi ég á fólk. Helga frænka vinnur hjá ríkinu og fær því skiljanlega flóð af svona brandörum frá vinnufélögum og sendir eins og ég útvalda gullmola áfram. Nanna hins vegar er frekar ný í netheimum og hvað varðar e-mail og, eins og við öll vorum í byrjun, þá finnst henni það vera sín skilda að dreifa gleðinni og "sýndu vinum þínum hvað þú elskar þá mikið" póstum. Hún er meira að segja svo öflug í sendana gleðinni að hún sendir yfirleitt fólkinu aftur sem hún fékk brandarann frá (þetta veit ég af reynslu) En já svona sér maður hvernig fólk vex og þroskast í netheimum :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli