fimmtudagur, október 30, 2003

annars var ég að fá email frá Raftholti (þar sem ég var að læra að mjólka í sumar) Einir sérlegur fréttaritari fjölskyldunnar sá sig af einhverjum ástæðum knúinn til að útskýra fyrir mér allar skammstafanir eins og t.d. (til dæmis) m.ö.o. (með öðrum orðum) hehehe mér fannst það fyndið, lífgaði aðeins upp á læridaginn minn. Ég gat samt alveg heyrt í Gurrý kallandi úr eldhúsinu (eða liggjandi í sófanum að horfa á sjónvarpið, hrópandi þaðan...) það sem hann ætti að skrifa. Og það kom á daginn að Sjonni er nýbúinn að eiga afmæli, þetta er auðvitað tilefni til þess að setja afmælikveðju hér á bloggið.

Til hamingju með afmælið Sjonni!!



ég veit ekki hver uppáhaldsliturinn hans Sjonna er svo hann fær bara æpandi grænann.

Ég ætla svo að vona að næst þegar fjölskyldan í Rafholti heimsækir bloggið mitt þá skrifi það í gestabókina, það er nú bara almenn kurteisi :)
Eini leist svo vel á bloggið mitt að ég held bara að hann langi í eitt svoleiðis, þá er bara að skella sér á blogger.com þeir eru ferlega flínkir með svona blogg :)

Engin ummæli: