miðvikudagur, maí 14, 2003

Þórunn og Laddi eru komin með tvö gæludýr, þau Andresi og Önnu Jónu, en þau eru andapar sem koma alltaf upp að glugganum hjá þeim og fá brauð. Upp á síðkastið hafa gæludýrin verið farin að færa sig aðeins upp á skaftið (eða handriðið í þessu tilfelli) ef brauðið kemur ekki á réttum tíma. Í raklett boðinu var það Anna Jóna sem varð þreitt á biðinni eftir brauðinu og flaug upp á handriðið og bankaði á rúðuna. Núna var komið að Andresi að láta vita að þau skötuhjúin væru mætt í mat.


Engin ummæli: