jiminn það bara brakar í heilanum á mér núna, er búin að vera svara spurningum úr námsefninu og þetta eru svona integretre spurningar eða spurningar sem tengja saman námsefnið svo maður situr með allar bækurnar fyrir framan sig og blaðar og reynir að tengja allt þetta sem maður veit og er geymt á vissum stöðum í heilanum. Reyni að byggja taugabrautir á milli staðanna og setja upp vegmerkingar til að taugaboðin rati rétta leið, setja tilvísanir hingað og þangað
"Á leiðinni í vefjadal er gott að kynna sér hin ýmsu lög sem dalurinn er byggður úr og þar sem frumuborgin liggur einmitt í vefjadal væri ekki vitlaust að kynna sér uppbyggingu þessarar merku borgar, ekki má gleyma próteinverksmiðjunni né orkuverinu en orkuverið er einkar umhverfisvænt og framleiðir bæði varmaorku og efnaorku. Samgöngukerfið er mjög þróað og niðurbrotsverksmiðjan enn merkilegri!
Þessi kynning var í boði flutningafyrirtækisins Golgi "við breytum, bætum, pökkum og flytjum!" jæja best að halda áfram að læra...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli