það er líffræðiárshátið í kvöld...sniffsniff mig langar að fara... Það var gaman í fyrra, flott 1. árs partí hjá Ernu strákakind, fengum auðvitað spíra sem var blandaður í haxabollu og þar sem við vorum bara rúmlega 20 í partíinu voru allir orðnir vel kátir þegar rútan kom... og ég sem ætlaði ekkert að drekka mikið fyrir matinn því það eyðileggur alveg matarlystina. Svo komum við upp í skála og við settumst og biðum eftir matnum, ég og Nanna ákváðum að kaupa saman eina rauðvín til að sötra með matnum, svo biðum við og biðum en enginn matur kom svo ég og Nanna drukkum bara meira og meira rauðvín, svo loksins þegar forréturinn kom þá skáluðum við bara í meira rauðvín, þegar aðalrétturinn kom svo loksins vorum ég og Nanna hálfnaðar með flöskuna..."matur? núna? eigum við ekki bara að fá okkur meira rauðvin?? skál!" Hljómsveitin fór svo fyrir ofan garð og neðan hjá mér því ég var hlaupandi um allan skála að reyna ná gsm-sambandi og senda Emblu skandal fréttir um hver væri ekki að kyssa kærastann sinn heldur einhvern annan... svo var auðvitað dj og þá fór mín og dansaði. Þegar rúturnar fóru svo að fara í bæinn langaði minni bara heim en Erna og Nanna voru alveg æstar í að fara í bæinn, þær sofnuðu svo í rútunni...
góða skemmtun kindurnar mínar ég verð með ykkur í anda...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli