þriðjudagur, febrúar 04, 2003

hmmm... ég hef verið að hugsa um hversu fátæk ég verð næsta vetur, þar sem ég fæ svo stutt sumarfrí og þarf að eyða 4 vikum af því vinnandi á sveitabæ að mjólka kýr kauplaust og þá get ég kannski bara unnið í rétt rúman mánuð hjá vegagerðinni. Sem betur fer verð ég nú hjá góðu fólki í sveit. Ég og Erna fórum einn góðan laugardag að heimsækja þau Sjonna og Gurrí og þau voru svo glöð að fá gesti að við ætluðum bara aldrei að losna þaðan en kannski verða þau bara glöð að losna við mig borgarbarnið eftir að ég hef verið þarna í einn mánuð og náð að gera öll heimskulegustu mistökin, mjólka nautin og svona, sé alveg mig í Dalalífsfíling að viðra hænurnar... Kannski er ástæða fyrir því að skólinn vill senda okkur borgarbörnin í sveit áður en við gerumst dýralæknar... Gurrí grét úr hlátri þegar ég sagði henni að ég dýralæknanemin væri með heiftarlegt kattarofnæmi (í leiðinni var ég auðvitað að knúsa heimilisköttinn og hljóp svo fram á bað að þvo mér um hendurnar) En mér finnst alveg eðlilegt að seinna meir opni ég læknisstofu og á skiltinu standi "Öll dýr velkomin nema kettir"

Engin ummæli: