miðvikudagur, febrúar 12, 2003
ég var að poppa áðan, ég keypti nefnilega örbylgjupopp þegar ég fór í búðina í dag. Svo kom yfir mig popplöngun áðan svo ég smellti einum poka inn í örbylgjuna og fylgdist vel með því mig langaði ekki í brennt popp, nema svo sest ég fyrir framan sjónvarpið en hlusta samt vel á poppið, svo heyri ég að voðalega stutt er á milli popphljóðanna geng að ofninum og þá allt í einu finn ég brunalykt, en ekki mikla samt svo ég hugsa jæja það eru bara nokkur popp farin að sviðna. Ég tek pokan úr ofninum og opna og fyrst kemur svona gufa eins og alltaf og ég sest með pokan fyrir framan sjónvarpið nema hvað það rýkur bara endalaust upp úr pokanum og brunalyktin verður alltaf sterkari og sterkari, ég þori ekki öðru en að hella poppinu í skál til að athuga hvort það væri virkilega kveiknað í poppinu, sem var reyndar ekki, það var bara allt kolsvart í miðjunni svo það munaði greinilega ekki miklu. Ætla ekki að kaupa aftur svona rimipopp...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli