Ég fór á mitt fyrsta þorrablót núna á laugardaginn, reyndar borðaði ég engan þorramat, maður gat keypt einhvern bakka á 50 kr en eftir að hafa borgað 150 kr inn þá hafði ég ekki áhuga á að láta þetta fólk fá meiri pening fyrir súrann mat. Við hittumst fyrst öll hjá Hildigunni og sátum þar í sameiginlega eldhúsinu hennar og þarna var nýtt fólk, Ragnhildur og Keli kærastinn hennar, þau og foreldrar Ragnhildar fluttu hingað út í september svo um daginn var Agnes að versla og heyrir þá konu vera tala íslensku og ákveður að heilsa, því auðvitað heilsast allir Íslendingar í útlöndum, þetta reyndist þá vera mamma hennar Ragnhildar og Agnes lét hana fá símanúmerið sitt svo Ragnhildur gæti haft samband.
Eftir að hafa drukkið heima hjá Hildigunni tókum við t-banann niðrí bæ og fórum á þorrablótið, þar var fullt af fullu fólki á öllum aldri og hljómsveitin Buff spilaði fyrir dansi. Og svo var bara dansað og skemmt sér. Arnar varð alveg rosalega fullur og af einhverjum ástæðum ákvað að ráðast á besta vininn Hjalta svo það urðu næstum því slagsmál, en bara næstum því, því auðvitað stukku allir upp og héldu þeim félögum en ég meina hvað er þorrablót án slagsmála?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli