miðvikudagur, apríl 02, 2003
Jæja ég verð ekki vegargerðargella næsta sumar heldur verð ég að vinna í ríkinu, þetta verður nú eitthvað skrítið ég sem er búin að vinna hjá vegagerðinni á hverju einasta sumri síðan ég var 17 ára. Næsta sumar verður ekki týnt rusl í roki og rigningu á reykjanesbrautinni, berjast við að halda sér í vegkantinum þegar risastórir trailerar þjóta framhjá á ógnarhraða. Lemja frá sér kríur, en sú ógn minnkaði til muna eftir að við vorum skildug til að vera með hjálm, ekki vera næstum því búin að nefbrjóta mig við að skipta út stikum og láta Nönnu fá hjartaáfall þegar ég skríð alblóðug upp í bíl...Næsta sumar verða ekki málaðir neinir þríhyrningar eða bannsvæði eða límt glit á ljósastaura, ekki tyrfðar neinar eyjur... Þetta verður skrítið sumar fyrst verð ég í sveit og svo bara inni að selja áfengi...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli