Jæja ég er að fara í hyttetur á morgun, skólinn á hytte sem kallast Streptokåken kull 02 (minn bekkur) er búinn að taka hann frá fyrir helgina. Ég veit ekki hversu frumstætt þetta er en ég ætla að vera við öllu viðbúin! Þetta er sko enginn íslenskur sumarbústaður með rennandi heitu vatni fossandi um allt, tekur víst korter að labba í næstu sturtu... en ég meina hvað er norskara en að fara í hyttetur?
Ég er að fara eignast einn hlut af jólagjafalistanum mínum! víííí mamma ætlar að gefa mér örbylgjuofn í afmælisgjöf (bara að minna á að afmælisdagurinn er 5.mars! skrifa það niður hjá sér núna) Það versta er að efst á lista yfir eiginleika sem ofninn verður að búa yfir er að hann má ekki vera breiðari en 47 cm, en það er einmitt breiddin á hillunni sem er eini staðurinn sem hann getur verið á. Ég fór í Elkjøp í gær (norska Elkó) og sá þar fínan ofn en nei hann var þá 48,9 cm á breidd. Þegar maður verður að fara hugsa út frá stærð þá takmarkast úrvalið alveg gífurlega...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli