Ég spilaði líka trivial í gærkvöld, eftir að kindurnar voru farnar fór ég og hitti hinar vinkonur mínar, ég og Inga vorum saman í liði á móti Þóru og Nönnu, ég og Inga fengum alveg snilldar íþróttaspurningu, hvað er mest selda ginið? það vissum við, auðvitað er það gordon's og fyrir þetta fengum við köku! híhíhí
Svo þegar bæði liðin áttu eftir að fá græna köku og ekkert gekk hjá hvorugu liðinu að komast á þann reit þá fengum við bara sitthvora grænu spurninguna og Nanna og Þóra gátu sína, sem var reyndar svindl því spurt var hvernig vængirnir væru á litinn hjá dreyrfiðrildi og svarið liggur bara í spurningunni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli