þriðjudagur, mars 11, 2003
jahérna ég held að það sé bara að fara koma vor hér í Osló, allur snjórinn að bráðna og vorlykt að þessu tilefni fór ég aðeins í bæinn áðan til að leita mér að jakka því með þessu áframhaldi þá get ég ekki verið þrammandi um í ullarkápu eða skíðaúlpu (eins og maður getur á íslandi allan ársins hring) Ég er samt alveg vonlaus í svona jakkaleiðangrum og held að næst verði ég að taka bara einhvern með mér til að fá annað álit því eins og mér finnst gott að versla föt ein þá þegar kemur að því að velja skó og jakka þá þarf ég yfirleitt annað álit. Það þurfti samt mikla sjálfstjórn að koma sér út úr vero moda án þess að kaupa neitt því þótt ég sæi engan jakka þá sá ég fullt af öðru dóti...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli