föstudagur, apríl 09, 2004

undur og stórmerki gerðust í gær, Hjördís kom í þrjár mínútur á msn. Jújú Hjördís er á lífi í Ameríku þótt það heyrist lítið frá henni. Maður fær svona eitt og eitt sms á stangli.

Það var nú meiri geðveikin í vinnunni á miðvikudaginn, ég veit ekki hvað er að fólki en það var allavega hleypt inn í hollum upp úr fjögur. Hvað er fólk að drekka svona mikið um páskana? Við skildum svo við búðina hálf tóma (bókstaflega) og fyllum bara á á laugardaginn (sem sagt á morgun)

Fólk virðist svo ekki átta sig á því að átvr stendur ekki fyrir þessum áfengisauglýsingum sem birtast í öllum blöðum og þáttum í formi kynninga og meðmæla. Það kemur og segir "ég er að leita að víni sem var í blaði" og maður spyr þá á móti "já mannstu hvaða vín það var?" og yfirleitt er svarið "nei en það kostaði (einhver upphæð nefnd) og var í blaði í fyrra dag, man ekki alveg hvaða blaði" Jájá og svo verður fólk voða hissa þegar maður getur ekki aðstoðað það neitt frekar. Það var um daginn einn kúnni sem varð voðalega fúll og sagði við strákana að þeir ættu nú bara að vera vinna á dekkjaverkstæði.

Það er svo gaman að vinna við svona þjónustustörf.

Engin ummæli: