mánudagur, apríl 05, 2004

æh ég hef nú ekkert sérstakt að segja... veit ekki afhverju ég er að blogga yfirhöfuð. Var að koma úr vinnunni, var bara frekar mikið að gera miðað við mánudag en það eru líka að koma páskar. Reif mig upp í morgun og fór á orbitrekkið, ég hef nefnilega ákveðið að ég nenni ekki að vera svona bumbótt lengur og þar sem það virkar lítið að kvarta og kveina þá var bara að skella sér á orbitrekkið og hef ég nú aftur fengið titilinn orbitrekk-kind.
Og til að halda mér við efnið þá er ég búin að mæla lærin, rassinn, mittið og bumbuna og hef þær tölur á veggnum við rúmið þannig að ég þegar ég vakna eldsnemma til að fara á tækið og er ekki að nenna framúr þá blasa fitubollutölurnar við mér og ég dröslast á fætur. Virkar ferlega vel. Fór á hverjum morgni í þarsíðustu viku en var óvenju löt í síðustu viku og fór bara þrisvar en þessa vikuna verður sko farið á hverjum morgni! Reyndar hef ég nú ekkert verið að breita matarræðinu mikið enda borða ég ekkert óhollt og lítið hægt að breyta þar, ég kaupi mér aldrei nammi né gos og ekki er nú eldaður fituríkur matur á heimilinu. Eina að ég verð að passa mig á mötuneytismatnum, en yfirleitt langar mig ekkert í hann og fæ mér bara af sallatbarnum. Er því greinilega ekki að borða vitlaust þar sem ég hef staðið í stað síðan ég kom frá Bólivíu 15 kílóum þyngri.

Mínútur á orbitrekk: 20

Engin ummæli: