jæja... spurningin um að fara starta þessu bloggi upp á nýtt, veit samt ekki hvernig þetta verður þar sem allur grundvöllur fyrir bloggi mínu er horfinn. Fór að blogga því ég nennti ekki að vera alltaf að skrifa sömu hlutina í email aftur og aftur. Það er bara lítið gaman að vera blogga um það sem maður gerir hér á Íslandi, ekkert gaman að blogga um fólk því aldrei að vita nema það vandri hingað inn og gæti móðgast, og þá þarf ég að fara passa það sem ég skrifa og það er bara ekkert gaman, maður getur ekkki leift sér að vera jafn hreinskilinn (sem ég á bágt með). Þannig að ég veit ekki hvernig þetta verður, kemur í ljós.
En allavega þá er ég núna komin í gömlu vinnuna, var fyrst bara að vinna dag og dag en hef núna upp á síðkastið verið að vinna daglega og var reyndar að koma úr vinnunni núna. Þetta reddaði mér alveg að það skildi vanta manneskju. Ég hef verið að bilast á netleysinu síðan ég kom heim en er sem betur fer komin með tengingu núna, ég er samt ekki sátt við hvernig þetta er hérna á Íslandi, að rukka sérstaklega fyrir erlent download og það 2,5 kr á mb, eins og sæstrengurinn slitni eitthvað frekar þegar meiri gögn eru flutt á milli, jújú ljósið fer alveg hræðilega illa með vírana. Þannig að ég hef ekkert getað náð í þættina mína eins og ég gerði alltaf, enginn angel, engar gilmoregirls, hef ekki einu sinni séð nýjustu friends þættina og hvað þá alias. SiO hefur líka verið eitthvað að rugla, er eitthvað að bulla um að ég hafi ekki borgað leiguna í september sem er bara lygi, skandiabanken er búinn að gera heimskulegar breitingar á sínu kerfi svo ég hef ekki getað komist inn á reikninginn minn því mig vantar password til að getað fengið sertifikat í tölvuna til að ég geti loggað mig inní bankann, en passwordið er aðeins sent í pósti á heimilisfang í þjóðskránni eða með sms í skráðan síma, og þar sem ég bý ekki lengur í Noregi og ekki lengur með norskt númer þá gat ég bara ekki fengið password, ég sagði þeim að ég væri nú flutt frá Noregi og hvernig ég ætti þá að getað komist í bankann??? Þá var nú ekki hægt að senda sms í íslenskt númer en hins vegar eru þeir svo tæknilegir að þeir geta sent bréf á íslenskt heimilisfang svo núna er ég að bíða eftir bréfinu með passwordinu. En mér finnst þetta heimskulegt, hvað ef ég væri nú norðmaður á ferðalagi ætti ég þá bara ekkert að getað komist í bankann, lenti kannski í vandræðum í Fjarskanistan og þá bara sorry kemst ekki inn á reikninginn þinn. Hallærislegur netbanki.
Og svo ég tali nú ekki um vesenið við að fá þessa tengingu! það er nú kannski ekki réttlátt að fara tala illa um Margmiðlun þar sem yfirmennirnir leistu þetta nú á endanum en það mætti kannski athuga fyrirkomulagið hjá þessum stúlkum sem flokkast undir "þjónustu"fulltrúa. Málið er að stelpan sem tók niður pöntunina hjá mér sló inn vitlaust símanúmer sem átti að tengja, eftir 5 virka daga var auðvitað ekki komin nein tenging hjá mér svo ég hringdi og þá komu mistökin í ljós, það var semsagt búið að tengja vitlaust númer, stelpan lofar að ýta á eftir að rétt númer verði tengt en það taki örugglega svona tvo daga, ég var nú ekkert voðalega sátt við það en nennti ekkert að fara rífast. Daginn eftir er auðvitað engin tenging komin en ég hringi til að athuga statusinn á málinu, þá var ekkert verið að gera í málinu og þau ennþá með vitlausa númerið í kerfinu og stelpan segist ætla að senda inn beiðni og ég bara "er ekki búið að því!?" Næsta dag hringi ég enn og aftur til að tékka á málunum, lendi þá á einhverri dónastelpu, enn þilur hún upp vitlausa númerið sem númerið sem á að tengja og ég bara "nei! þetta er vitlausa númerið!!" hún segir önuglega að hún sé búin að senda beiðni og biðja um flýtimeðferð en þetta verði sennilegast komið í næstu viku og ég bara "næstu viku?? þetta eru ykkar mistök sem bittna á mér og þið eruð ekki að gera neitt til að bæta fyrir það!" en stelpan sagði pirruð að hún væri búin að biðja um flýtimeðferð og ekkert meir hægt að gera við því og þeim þætti þetta leiðinlegt, ég svaraði að mér væri alveg sama þótt þeim þætti þetta leiðinlegt ekki tengdist ég netinu á því, endaði með því að ég skellti á. Þar sem ég var nú í vinnunni og gat ekki verið að hanga í símanum allan daginn að rífast í þjónustufulltrúum ákvað mamma að ganga í þetta mál svo hún hringir enn og aftur og ætla að tala við yfirmann, en þá var enginn við, svo hún hringdi seinna og fékk þá að tala við einhverja konu sem er þjónustustjóri, þeirri konu fannst við nú vera að gera mikið mál úr engu og eiginlega bara sjálfsagt að það tæki svona langan tíma að laga þetta (sem sagt flýtimeðferð tekur lengri tíma en venjuleg meðferð) hún bauð samt afslátt í tvo mánuði á erlendu downloadi en mamma sagðist ekkert vera sátt við að vera boðinn einhver afsláttur á þjónustu sem þeir væru ekki farnir að veita. Endaði með því að mamma nennti ekki að tala meira við þessa konu, svo hún snéri sér að síðunni hjá margmiðlun, athugaði netföngin hjá öllum yfirmönnum og sendi email á línuna og rakti allt þetta mál. Klukkutíma síðar var hringdi maður í hana, baðst innilegrar afsökunnar á öllu þessu og að hann ætlaði bara persónulega að ganga í málið, stuttu seinna hringdi hann svo aftur og var þá búið að tengja línuna og ég á víst að fá einn frímánuð.
Þótt þetta mál hafi nú leyst farsællega á endanum þá finnst mér nú hart þegar maður þarf að kvarta í yfirmenn yfirmanna til að fá leiðréttingu á mistökum fyrirtækisins. Er það þannig að þessir þjónustufulltrúar geta ekki kippt málunum í lag þegar svona gerist. Kannski og kannski ekki, allavega virtist viljinn fyrir því ekki vera fyrir hendi. Ég get nú í hreinskilni sagt að ég var við það að fara niður eftir og henda í þau módeminu og segja þeim að eiga þessa adsl áskrift sína, ég væri bara farin annað og hefði ég líkast til gert það ef ég hefði talað við þennan þjónustustjóra og fengið sömu svör og mamma fékk, ekki hefði mér dottið í hug að senda email á stjórnendur fyrirtækisins.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli