miðvikudagur, apríl 14, 2004

ég er að reyna að gera þetta ekki að einhverju nöldur bloggi en úff ég bara verð!

búin að vera í basli með norska bankann minn. Málið er að til að getað loggað sig inn í bankan þá verður tölvan að hafa sertifikat, maður nær í þetta sertifikat á bankasíðunni og þarf til þess að skrifa inn kennitölu og pin-koda, og svo nýjasta nýtt eitthvað engangspassord, sem myndi þýðast sem einnotalykilorð, sem maður fær sent með sms eða í pósti. Nú þetta kerfi var nú ekki komið á áður en ég flutti heim og ég hafði ekki notað nýju tölvuna mína til að fara í netbankann svo það er ekkert sertifikat í henni og get ég þess vegna ekki komist inn á reikninginn minn. Ég sendi bankanum email þar sem ég upplýsti þá um að ég væri nú flutt úr landi og því gagnaðist lítið að senda mér sms á símanúmerið sem þeir höfðu skráð og ekki byggi ég lengur á heimilisfanginu, og ég spurði hvort þeir gætu ekki sent mér sms í íslenska númerið mitt. Ég fékk svar að vegna tæknilegra örðugleika væri ekki hægt að senda sms í útlensk númer, hins vegar gæti ég stofnað einhvern símareikning þar sem ég gæti millifært peningana mína yfir á og svo hringt til þeirra til að gera millifærslur. Ekki leist mér nú vel á þá hugmynd. Skrifaði til baka og sagði að það yrði nú dýrt fyrir mig að vera alltaf hringjandi til noregs í hvert sinn sem ég þyrfti að nota bankann, hvort þeir gætu ekki sent þetta engangspassord á íslenska heimilisfangið mitt, og það var svarað um hæl að þetta væri á leiðinni í pósti. Þetta var nokkru fyrir páska og bjóst ég nú við að fá bréfið innan þriggja daga, en svo leið og beið og ekkert bréf kom frá skandiabanken. Í kvöld var svo bankað upp á og þar var pósturinn með bréf frá bankanum, loksins hugsaði ég, kvittaði fyrir og fór í tölvuna. Eftir langa mæðu náði ég að komast inn á síðuna þeirra (hún er alltaf svo lengi að hlaðast inn) og ég opnaði bréfið og sá þar einhvern kóða. Ég stimpla inn kennitölu og pin-númerið mitt en fæ villutilkinningu um að pin sé vitlaust, mér finnst það eitthvað skrítið og prófa þá þetta sem ég hafði fengið í póstinum, það virkar, og næst kemur "stimplaðu inn engangspassord 6 stafir" ég horfi á fjögura stafa pin-kóðan sem ég var með í höndunum og hugsa með mér wtf?! kíki aftur í umslagið, og þar er ekkert meir. Þá höfðu þessir norsaravitleysingar sent mér nýtt pin númer en ekki passord sem mig vantaði! Ég sendi bréf, sé hvaða svar ég fæ á morgun.

Engin ummæli: