fimmtudagur, apríl 22, 2004

Þá hefur baráttan við Apple IMC hafist. Ég fór á mánudaginn með tölvuna mína til að láta gera við hana, ég var send þaðan út með þeim orðum að aðeins stórar powerbook væru með alheimsábyrgð og það væri best fyrir mig að senda tölvuna með hraðþjónustu í norsku búðina (Mac & Carry) Þeir gætu jú alveg litið á tölvuna og gert við hana ef ég vildi en það væri þá allt á minn kostnað. Reyndar var maðurinn mjög almennilegur og ekkert út á það að setja en ég var nú ekki sátt við þessi svör. Þegar ég kom heim þá sendi email til Mac & Carry og spurði þá út í þessi mál, hvort það væri satt að aðeins powerbook væru með alheimsábyrgð og hvort ég þyrfti virkilega að fara senda tölvuna til þeirra til viðgerðar. Mér var svarað um hæl:

Hello Herdis,

You are right. The iBook is covered by a worldwide warranty.

I even called Apple and they confirmed this.

They should definitely repair it there in Reykjavik.


Best regards,
Christian Karlsson
Mac & carry

Ég varð auðvitað voða glöð að lesa þetta, en eitthvað minnkaði ánægja mín þegar ég las á
spjallþræði apple.is þar sem vefstjórinn sagði að ábyrgðin gilti en ekki meira en svo að það væri tekið við tölvunni og hún send út og sendingarkostnaður og trygging greidd af eiganda. Ég hafði sem sagt skrifað þar til að fá ráðleggingar um hvað hrjáði tölvuna mína. Þannig að ég skrifaði aftur til Christian og spurði hann hvort að þetta gæti verið, að ég þyrfti að borga sendinga kostnað og hvers vegna ég fengi lélegri þjónustu á Íslandi heldur en annars staðar í heiminum. Aftur var Christian fljótur til svars og fékk ég mail frá honum áðan.

Dear Herdis,

I admire your patience. I am so sorry that you are caught in such a bubble of misinformation. The warranty that Apple has given you does cover your iBook, and there should not be any charge to you for sending it in to Apple, or to an Apple Service Provider in Reykjavik. I have no clue as to why they are telling you contrary.

If they continue to stall, I would suggest you call Apple's Norwegian Service number: +47 815 00 158. They would be able to send you a UPS courrier that would pick up your iBook, send it to Apple, and they would send it back to you.

Good luck!

Christian Karlsson
Mac & carry

Og hana nú! Ég fer með þessi email í búðina á mánudaginn og sýni þeim, vonandi að þau taki af allan vafa. Það eina sem ég hef áhyggjur af núna er að tölvan mín muni fá einhverja "sérmeðferð" en vonandi standa þeir nú fagmannlega að þessu...

Engin ummæli: