sunnudagur, apríl 18, 2004

úff ég veit ekki hvað þetta er með mig og tæki, allt sem ég kaupi, ef það kostar einhvern pening er gallað. Nú er tölvan að klikka. Eitthvað sambandsleysi við batteríið, sem lýsir sér í því að ef hún er tekin úr sambandi þá bara slokknar á henni og ekki er hægt að kveikja á henni nema hún sé í sambandi. Veit ekki hvað gerðist sem olli þessu. Ég slökti á henni á föstudagskvöldið, stakk henni í samband og í gærmorgun þá var hún svona. Fór á spjallborðið á apple.is og fékk fá svör og einhver fór að rugla um að tölvan væri ekki í ábyrgð hérna á Íslandi því hún hefði verið keypt erlendis. Ég las nú yfir ábyrgðasamninginn og þar stendur ekkert um það, og reyndar er klausa um að ef tækið sé færanlegt þ.e. geti fúnkerað án þess að vera í sambandi þá eigi maður að fá þjónustu hvar sem er. Ætla fara með tölvuna á morgun í apple búðina og athuga hvað þeir segja.
Ætli það hvíli einhver svona tækjabölvun á sumu fólki, allavega er það alltaf þannig að það er eitthvað að þeim tækjum sem ég kaupi. Þegar ég keypti fyrstu tölvuna mína þá var skjárinn í ólagi, græjurnar mínar bræddu úr sér þegar þeim var stungið í samband, brunalykt og reykur, og þótt að sófinn minn flokkist ekki undir tæki þá er hann dýr hlutur og auðvitað þurfti að vera einhver galli á honum, einn skrúfgangurinn til að festa lappirnar er of lítill. Reyndar hefur myndavélin mín verið í góðu lagi (7, 9, 13) Og svo var óbeint tækjavesen með þessa adsl tengingu og núna tölvan, apple sem klikkar víst sjaldan, en þarf auðvitað að gera það í mínu tilviki.

Engin ummæli: