sunnudagur, apríl 25, 2004
ég hef ekki ennþá náð að finna mér góðan farveg í bloggi mínu eftir að ég kom aftur heim á íslenska grund. Mig vantar eitthvað gott sjónarhorn. Áður bloggaði ég sem íslendingur staddur í Noregi og um upplifun mína á nýjum skóla og norsku þjóðfélagi. En núna þá er ég jú orðin 25 ára stök, á ég að þora að segja þetta orð... kona *hrollur* nei ég er ekki orðin kona ennþá! 25 ára stök stelpa (hljómar miklu betur) ekki í neinu námi, bý heima hjá mömmu og vinn í ríkinu. Get ekki lengur falið mig á bakvið nafnleysi þar sem flestir sem eiga eftir að koma við sögu á bloggi mínu munu lesa það. Og þannig er að ótrúlegasta fólk virðist fá áhuga á að lesa skrif mans, veit ég um nokkra sem hafa tekið upp á því að halda "leyniblogg" til að forðast afskipti hnýsna ættingja og getað þar með verið hreinskilnari í skrifum sínum. Ætli ég eigi eftir að detta inní þann farveg líka, koma mér upp nafnlausu leynibloggi þar sem ég get rausað um alla án þess að eiga á hættu að særa tilfinningar viðkomandi. Svo er aftur á móti hitt, öll þessu nafnlausu netskrif þar sem fólk þarf ekki að bera ábyrgð á orðum sínum, mér finnst það ekki alveg sanngjarnt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli