sunnudagur, apríl 25, 2004

Horfði á evróvision þáttin í gær, mér fannt þetta ágætis tilbreyting frá þessum hefðbundnu kynningarþáttum. Hvað sem hver segir þá eru skandinavar fyndnir og skemmtilega hreinskilnir. Það var nú gaman að heyra í kunnulegri norsku en ég er ennþá á því að mér finnst sænska skemmtilegri. Ég missti nú af síðustu lögunum en þau sem ég heyrði fannst mér öll hver öðru verri og greinilega ástæða fyrir því að þessi lönd voru skikkuð í forkeppni og ég gat með heilum hug tekið undir þegar fulltrúar norðurlandanna stundu upp nei herre gud og snella þegar tölvugerðir höfrungar stukku upp úr tölvugerðu hafi í myndbandi möltumanna. Vonandi að úrvalið verði aðeins betra í næsta þætti.

Engin ummæli: