ofboðslegt tölvunörd er ég orðin. Þar sem tölvan þarf að fara í viðgerð þá var ráðist í kaup á utanáliggjandi hörðum diski, þar sem ég verð að taka backup af skránnum mínum og þar sem ég á nokkur gígabæt af efni þá var bara rugl að fara kaupa diska og brenna það allt. Hefði verið alla helgina að því. Svo ég fór á netið og skoðaði síðurnar hjá þessum tölvubúðum, og mikið ofboðslega eru til margar tölvubúðir. Magnús tölvukarl sem vinnur með mér hafði ráðlagt mér að kaupa box og svo harðan disk í boxið, því þá væri svo auðvelt að skipta um diskinn þegar mig vantaði stærri. Svo í dag var farið á flakk, ég fór fyrst í elkó og þar voru þeir bara með utanáliggjandi harða diska sem voru bara reddí, engin box eða harða diska í lausu, þá var ferðinni heitið í tölvuvirkni sem er rétt hjá í Kópavoginum, ég hafði séð á netinu að þeir voru með þeim ódýrari. Þar tók á móti mér pínulítill geðvondur hundur, sem urraði og gelti og fór svo á bakvið til að láta vita að það væri kominn viðskiptavinur, þaðan heyrðist svo þar sem litla dýrið var skammað fyrir að vera gelta á viðskiptavinina og fram kom strákur. Ég upplýsti hann um erindið mitt, hann pikkaði eitthvað inn í tölvuna og sagði svo beint það sem þetta myndi kosta í heild, var mjög almennilegur eða þannig þegar hann spurði hvort ég myndi staðgreiða, nei... stamaði ég, ég hafði bara hugsað mér að setja þetta á vísa... Já ég yrði þá sjálf að díla við bankann ef ég vildi borga þetta með raðgreiðslum, þeir sæju ekki um það. Nei ég hafði nú ekki hugsað mér að gera það. Loksins stundi ég upp spurningu um hvernig boxið væri og fékk flóð af upplýsingum yfir mig sem ég hefði allt eins getað verið á hebresku. Eftir þetta þá spurði ég hikandi hvað það kostaði og hvað harði diskurinn kostaði. Ég þakkaði svo fyrir mig og fór út, þegar ég var komin í bílinn fattaði ég að ég hafði ekki fengið neinar upplýsingar um harða diskinn, en mig rámaði í að hafa séð disk á sama verði á vefnum hjá þeim og áætlaði að þetta væri hann. Ég fór svo í Tæknibæ og fékk nú mun hlýlegri móttökur þar, enginn varðhundur, reyndar var harði diskurinn sem þeir áttu á lager mun dýrari en sá sem þeir voru með í tölvuvirkni og boxið líka, en þegar ég sagði að ég hefði nú verið hjá tölvuvirkni og boðist ódýrari diskur og box þá jánkaði strákurinn bara fór í tölvuna og pikkaði eitthvað og sagðist geta látið mig fá smá afslátt. Þetta kostaði þá svipað og í tölvuvirkni, ég sagðist alveg geta sætt mig við það og keypti frá þeim, enda langaði mig ekkert að keyra aftur í kópavoginn og láta fýlustrákinn afgreiða mig.
Svo var ég áðan að setja diskinn í boxið og þorði varla að anda á diskinn af hræðslu við að skemma eitthvað. Og núna er ég búin að færa allt yfir á hann, get ekki sagt að það sé skortur á geymsluplássi hjá mér núna... allt í allt er ég núna með 200 gb...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli